Ráku yfirmann FBI sólarhring áður en hann átti að fara á eftirlaun

Andrew McCabe var rekinn af Jeff Sessions, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, um sólarhring áður en hann átti að fara á eftirlaun. Hann gæti tapað eftirlaunaréttindum sínum.

Jeff Sessions
Auglýsing

Jeff Sessions, dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, rak Andrew McCabe úr starfi sínu sem for­stjóri alrík­is­lög­regl­unnar FBI, um sól­ar­hring áður en hann var átti að fara á eft­ir­laun, seint í gær. Með þess­ari ákvörðun kemur hann í veg fyrir að hann geti átt rétt á ríku­legri eft­ir­launum en hann hefði ann­ars feng­ið. 

Jeff Sessions hefur sjálfur verið til rann­sóknar fyrir sam­band sitt við Rússa, en vitað er að hann átti fundi með Sergey Kis­lyak, sendi­herra Rússa í Was­hington DC, en hann er náinn banda­maður Vladímir Pútíns for­seta Rúss­lands.

Auglýsing


McCabe kom bæði að rann­sókn á tölvu­póstum Hill­ary Clinton og afskiptum Rússa af kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum árið 2016 og tengslum við fram­boð Don­alds Trumps Banda­ríkja­for­seta. 

Trump hefur haldið því fram, ítrek­að, að McCabe sé óhæfur í starfi og hafi verið búinn að mynda sér skoðun á tengslum fram­boðs Trumps við Rússa, án þess að hafa nokkuð í hönd­unum um það. 



McCabe sendi frá sér harð­orða yfir­lýs­ingu eftir að ákvörðun um að reka hann hafði verið tek­in, en hann las fyrst um hana í fjöl­miðl­um. Hann segir að þessar aðgerðir gegn honum séu hluti af víð­tækum aðgerðum stjórn­valda og Trumps for­seta, til þess að rýra trú­verð­ug­leika hans, alrík­is­lög­regl­unnar og þeirrar rann­sókn­ar­vinnu sem farið hefur fram til þessa. 

Hann segir í yfir­lýs­ingu sinni að hann sé stoltur af meira en tveggja ára­tuga vinnu sinni hjá FBI, meðal ann­ars við að berj­ast gegn skipu­lagðri glæp­a­starf­semi Rússa í New York sem full­trúi á göt­unni (street agent). Það sé bæði sárt og valdi von­brigð­um, að eft­ir­launa­réttur hans sé skertur með þessum hætt­i. 

Hann seg­ist þó full­viss um að heið­ar­legir rann­sak­endur hjá FBI og öðrum rann­sókn­ar- og lög­reglu­stofn­unum muni leiða rann­sókn­irnar sem eru í gangi til lykta með far­sælum og réttu­mætum hætti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent