Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar, segja í yfirlýsingu að „leikhús fáranleikans“ sjáist nú hjá stjórnendum í viðskiptalífinu, sem telji réttlætanlegt að fá margföld laun sem tíðkast á almennum vinnumarkaði.
Í yfirlýsingunni, sem birtist á Facebook síðu Ragnars Þórs, segir að sjálftaka og siðleysi sé nú það sem helst einkenni launaþróun hjá stjórnendum í atvinnulífinu. Þetta sé eitthvað sem launafólk geti ekki sætt sig við og muni ekki gera það. „Siðlaust launaskrið og sjálftaka í gegnum kaupauka og bónuskerfi áttu að heyra sögunni til eftir hrunið 2008 en annað hefur komið á daginn. Það er ljóst að launafólk á almennum og opinberum markaði mun ekki lengur sætta sig við að bera ábyrgð á stöðugleika í samfélaginu á meðan stjórnvöld og aðrir embættismenn ásamt toppunum í íslensku viðskiptalífi stíga trylltan sjálftökudans. Sem dæmi um firringu þeirra sem stjórna fyrirtækjum á Íslandi má nefna launagreiðslur til forstjóra Eimskips sem námu 102,6 milljónum á síðasta ári. Á einu ári fær hann tekjur sem láglaunafólk er stóran hluta starfsævinnar að vinna sér inn fyrir,“ segir í yfirlýsingunni.
Sérstaklega er gjáin sem myndast hefur á milli stjórnenda og síðan fólksins á gólfi er ekki síst gagnrýnd, í ljósi þess að ljósmæður eigi nú kjarabaráttu. Launin þar séu lág þrátt fyrir 6 ára háskólanám og alveg óumdeilt samfélagslegt mikilvægi. „Launagreiðslur til Forstjóra Eimskipa á einu ári jafngilda byrjunarlaunum 19 ljósmæðra eftir 6 ára háskólanám og milljóna námslán. Þarf forstjóri Eimskipa að vera þess ávallt viðbúinn að mæta til vinnu, vegna þess að líf og heilsa fólks er að veði? Það er ólíklegt að þjóðin tæki eftir því ef topparnir í viðskiptalífinu myndu leggja niður störf í nokkra daga eða vikur, í það minnsta þarf ekki að loka fyrirtækjunum ef það gerist. Stjórnendur eru engu að síður dekraðir af stjórnum fyrirtækja sem mörg hver eru að stórum eða í meirihluta eigu eftirlaunasjóða almennings. Ástandið er svo galið að ekki verður lengur við unað! Nú eru ljósmæður í mikilli og erfiðri kjarabaráttu og ber okkur öllum að styðja, virða og sýna í verki stuðning okkar við baráttu þeirra fyrir bættum kjörum. Við undirrituð styðjum ljósmæður heilshugar og skorum á samninganefnd ríkisins að nálgast kjaraviðræður þeirra af virðingu og sanngirni í stað hroka og yfirlætis,“ segir í yfirlýsingunni.
Þessi fjórir formenn eru í forsvari fyrir félög sem eru með tugþúsundir félagsmanna, en VR og Efling eru stærstu stéttarfélög landsins. VR er með tæplega 33 þúsund félagsmenn en Efling rúmlega 27 þúsund.