Er efstu lögin orðin svo botnlaust gráðug að það þarf að setja lög á þau?

Hvað er eðlilegur tekjumismunur? Á hæst launaðasti starfsmaður stofnunar eða fyrirtækis að vera með tíu eða tuttugu sinnum hærri laun en sá lægst launaðasti? Þetta er meðal þess sem er til umræðu í sjónvarpsþætti Kjarnans á Hringbraut í kvöld klukkan 21.

Auglýsing

„Síðan er bara orðin spurn­ing hvort að efstu lögin í sam­fé­lag­inu séu orðin það botn­laust gráðug að það þurfi að koma böndum á þetta með laga­setn­ing­u.“ Þetta segir Drífa Snædal, fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands Íslands, í sjón­varps­þætti Kjarn­ans á Hring­braut sem frum­sýndur verður klukkan 21 í kvöld. Þar ræðir hún, ásamt Þor­steini Víglunds­syni, vara­for­manni Við­reisnar og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Sam­taka Atvinnu­lífs­ins, kjara­mál, stétta­bar­áttu og áhrif fregna um ofur­laun á þá flóknu stöðu sem er uppi á vinnu­mark­aði. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að ofan.

Drífa segir að skot­graf­irnar í kringum ofur­launaum­ræð­una séu vel þekkt­ar. „Kjara­ráð kemur með ein­hver úrskurð, við verðum vit­laus, allir verða vit­laus­ir, við förum í fjöl­miðla. Svo koma ein­hverjir for­stjórar og fá ein­hverjar hækk­an­ir. Allt verður vit­laust. Við hótum því að fara í verk­föll. Þetta er ein­hver dans sem við þekkjum svo vel.“

Auglýsing
Að hennar mati þarf að horfa á stærri mynd­ina og taka umræð­una lengra. Það þurfi til að mynda að eiga sé stað sam­tal um hvað sé eðli­legur tekju­mis­mun­ur. „Við höfum aldrei tekið þá umræðu. En hún var í gangi hérna fyrir ára­tugum síð­an. Hvort að það væri eðli­legt að hæst laun­að­asti rík­is­starfs­mað­ur­inn væri með tvö­föld laun lægst­laun­aða? Þre­föld? Fjór­föld? Núna er hann með hátt í tíföld.“

Að sama skapi þurfi að ræða hver eðli­legur tekju­munur sé innan fyr­ir­tækja á einka­mark­aði. „Hann er senni­lega 20faldur innan sumra fyr­ir­tækja. Sum lönd hafa farið þá leið að setja klásúlu í árs­reikn­inga­lögin þar sem fyr­ir­tækjum ber skylda til að greina frá tekju­mis­mun innan hvers fyr­ir­tæk­is. Það er ágætis byrj­un. [...] Hvað er verið að borga hæst­laun­aða og hvað er verið að borga lægst laun­aða.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent