Valgerður Halldórsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjártæknifyrirtækisins Framtíðarinnar, sem býður upp á námslán, húsnæðislán og almenn lán. Félagið er í eigu sjóðs í stýringu hjá GAMMA og hefur hlotið skráningu sem lánveitandi hjá Fjármálaeftirlitinu í samræmi við lög um fasteignalán til neytenda.
Valgerður starfaði síðast sem framkvæmdastjóri Visku. meðal annars áður hjá Plain Vanilla sem þróunarstjóri ásamt því að bera ábyrgð á viðskiptaþróun félagsins og stýra um tíma skrifstofu fyrirtækisins í New York. Þá leikstýrði hún og framleiddi kvikmyndina The Startup Kids árið 2012, ásamt því að stofna tvö önnur sprotafyrirtæki og framleiða borðspil. Valgerður hefur setið í stjórn Saga Film frá árinu 2015. Hún lauk BSc námi i iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2008.
Hjá Framtíðinni mun hún sinna daglegum rekstri félagsins og bera ábyrgð á stefnumótun, viðskiptaþróun og markaðsmálum.
Hlíf Sturludóttir, stjórnarformaður Framtíðarinnar, segir að það sé mikill fengur fyrir félagið að fá Valgerði til liðs við sig. „Hún hefur gríðarlega reynslu af nýsköpunar- og frumkvöðlastarfi, bæði hér á Íslandi og erlendis, og sú reynsla mun nýtast vel í þeim spennandi verkefnum sem framundan eru, en við ætlum að vera í fararbroddi varðandi nýtingu tæknilausna við fjármálaþjónustu.“