„Ég vil afnema hina svo kölluðu 25 ára ,,reglu‘‘ við innritun nemenda í framhaldsskóla.“
Þetta segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag, en þar gerir hún stöðu framhaldsskólana að umtalsefni.
Frá árinu 2012 hefur framhaldsskólum verið heimilt að forgangsraða umsóknum um skólavist eftir tiltekinni flokkun á umsækjendum. Einn liður í reglugerðinni kveður á um að umsækjendum 25 ára og eldri, sem njóta ekki forgangs af öðrum ástæðum, skuli raðað næstsíðast við flokkun umsókna.
Í grein sinni segir hún að nú standi til að einfalda regluverk og breyta til batnaðar .„Nú eru drög að breytingum á fyrrgreindri reglugerð komin í opið samráð á vef samráðsgáttarinnar. Öllum er frjálst að senda inn umsögn eða ábendingar um drögin í gegnum samráðsgáttina en markmið hennar er að auka gagnsæi og möguleika almennings og hagsmunaaðila á þátttöku í stefnumótun, reglusetningu og ákvarðanatöku opinberra aðila. Þess má geta að umsækjendum 25 ára og eldri bjóðast einnig fjölmörg önnur námsúrræði en nám í framhaldsskóla. Þar er helst að geta framhaldsfræðslu, sem boðin er um allt land og lögð hefur verið áhersla á að efla og styrkja með auknum fjárframlögum á síðustu árum. Þá geta nemendur á þessum aldri sótt aðfaranám í staðnámi eða fjarnámi. Við lofuðum stórsókn í menntamálum og við ætlum að standa við það. Það eiga því allir að komast að í framhaldsskólunum sem sækja um, uppfylli þeir þau inntökuskilyrði sem skólarnir setja hverju sinni. Það að vera yngri en 25 ára er ekki inntökuskilyrði,“ segir Lilja í grein sinni.