Vaxandi ójöfnuður hefur rofið samfélagssáttmálann

Stigvaxandi ójöfnuður elur af sér þjóðernispopúlisma og einangrunarhyggju að sögn varaformanns Viðreisnar. Alþjóðlega er krafa innan verkalýðshreyfingarinnar að ráðast í klassíska stéttarbaráttu.

Drífa Snædal og Þorsteinn Víglundsson voru gestir Þórðar Snæs Júlíussonar í síðasta sjónvarpsþætti Kjarnans.
Drífa Snædal og Þorsteinn Víglundsson voru gestir Þórðar Snæs Júlíussonar í síðasta sjónvarpsþætti Kjarnans.
Auglýsing

Þrátt fyrir að alþjóða­væð­ing og aukið við­skipta­frelsi hafi skilað heilt yfir miklu hærri lands­fram­leiðslu á mann í flestum ríkjum heims þá hefur ójöfn­uður auk­ist. Lág- og milli­tekju­hópar hafa setið sér­stak­lega eftir og afleið­ingin er meðal ann­ars aukin upp­gangur þjóð­ern­ispopúl­isma og ein­angr­un­ar­hyggju.

Þetta sagði Þor­steinn Víglunds­son, vara­for­maður Við­reisn­ar, í sjón­varps­þætti Kjarn­ans á mið­viku­dag. Þátt­inn má sjá í heild sinni hér að neð­an.

Þor­steinn sagði það engum vafa und­ir­orpið að ójöfn­uður væri að aukast. Ef ekki yrði tekið á því þá grafi það undan því lýð­ræð­is­lega umboði sem stjórn­völd í hverju landi hafa til þess að halda opnu við­skiptaum­hverfi. Þetta sjá­ist á þróun mála víða í Aust­ur-­Evr­ópu, í Banda­ríkj­unum og því að Brexit hafi verið sam­þykkt í Bret­landi. „Þarna er þjóð­ern­ispopúl­ismi að rísa upp og kjósa gegn við­skipta­frels­inu, þrátt fyrir ávinn­ing­inn sem af því hefur hlot­ist, og kjósa aftur ein­angr­un­ar­stefn­una sem við reyndum fyrir tæpri öld síðan og virk­aði bara ekki vel.“

Auglýsing

Drífa Snædal, fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands Íslands, var einnig gestur þátt­ar­ins. Hún sagði að það væri alþjóð­leg krafa í í verka­lýðs­hreyf­ing­unni að fara með bar­áttu hennar „back to basics“ í átt að hefð­bund­inni stétta­bar­áttu. „Við sjáum það að ójöfn­uður hefur auk­ist takt­fast upp frá 1980. Þessi átt sem við vorum að fara að auka jöfnuð í heim­inum og í hinum vest­rænu sam­fé­lög­um, að sá sam­fé­lags­sátt­máli var rof­inn. Eftir því sem ójöfn­uður eykst því meiri verður kraf­an. Því meiri verður vit­undin um að það sé stétta­skipt­ing. Og því meiri verður krafan um rót­tæka stétta­bar­átt­u.“

Drífa sagði að fréttir eins og þær sem borist hafa um miklar hækk­anir á launum æðstu emb­ætt­is­manna og ofur­launum for­stjóra fyr­ir­tækja í einka­geir­anum væru sem olía á eld­inn. „Fólk situr eftir með þá til­finn­ingu að hér er að verða stig­vax­andi ójöfn­uð­ur. Fólk er ekki að bera sann­gjarnt úr býtum fyrir þá vinnu sem það innir af hendi. Það er greini­lega til pen­ingur til skipt­anna og þá verður þessi nún­ing­ur.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent