Heilbrigðiskrefið afskrifaði 36 milljónir vegna erlendra ferðamanna

Íslenskar heilbrigðisstofnanir afskrifuðu í fyrra alls rúmlega 36 milljónir vegna ógreiddra reikninga erlendra ferðamanna. Sú fjárhæð hefur hækkað um tæpar 13 milljónir frá árinu 2016 þegar afskrifaðar voru rúmlega 23 milljónir.

brunafing-i-stjornarrainu_14344864624_o.jpg
Auglýsing

Íslenskar heil­brigð­is­stofn­anir afskrif­uðu í fyrra alls rúm­lega 36 millj­ónir vegna ógreiddra reikn­inga erlendra ferða­manna eða þeirra sem þangað leita sem ekki eru sjúkra­tryggðir hér á landi . Sú fjár­hæð hefur hækkað um tæpar 13 millj­ónir frá árinu 2016 þegar afskrif­aðar voru rúm­lega 23 millj­ón­ir. Þetta kemur fram í svari heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Lang­hæstu kröf­urnar eru afskrif­aðar hjá Land­spít­al­an­um. Þar voru afskrif­aðar árið 2017 rúmar 28 millj­ónir króna. Athygli vekur að í fyrra voru engar kröfur afskrif­aðar hjá Sjúkra­trygg­ingum Íslands, árin þar áður hljópu afskriftir á tugum þús­unda en á árunum 2008 til 2014 afskrif­aði SÍ tæp­lega fimm millj­ónir vegna ógreiddra reikn­inga. Bætt verk­lag hjá stofn­un­inni hefur gert það að verkum að tek­ist hefur að útrýma afskriftum hjá SÍ.

Tafla: Heilbrigðisráðuneyti

Auglýsing
Alls eru voru útistand­andi kröfur íslenskra heil­brigð­is­stofn­ana rúmar 300 millj­ónir árið 2017 vegna ógreiddra reikn­inga erlendra ferða­manna. Þar vega afskriftir Land­spít­al­ans enn þyngst, þar sem tæp­lega 286 millj­ónir voru ógreiddar í fyrra. Árið 2016 voru það rúmar 90 millj­ónir en árið 2015 tæpar 56 millj­ón­ir. Ógreiddar kröfur Land­spít­al­ans hafa því auk­ist umtals­vert á tveimur árum.

Tafla: Heilbrigðisráðuneyti

Heil­brigð­is­stofn­anir sjá yfir­leitt sjálfar um inn­heimtu sjúkra­kostn­að­ar. Sem dæmi um ferli inn­heimtu er hjá Land­spít­al­anum lögð mikil áhersla á stað­greiðslu komu­gjalda á bráða-, dag- og göngu­deildir spít­al­ans. Hlut­fall stað­greiddra krafna er nokkuð mis­jafnt eftir deild­um, en að meðal tali er það 80 pró­sent. Ef ekki er stað­greitt er krafa stofnuð í net­banka og greiðslu­seð­ill sendur í pósti. Áminn­ing­ar­bréf er sent 10 dögum eftir eindaga, sem er 30 dag­ar, og ítrek­un­ar­bréf 45 dögum eftir eindaga. Ef ekki er greitt innan þess tíma er krafan send í lög­fræði­inn­heimtu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent