Innviðafjárfestingar í fyrirrúmi í nýrri fjármálaáætlun

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hyggst auka fjárfestingar í innviðum samfélagsins. Lagt verður upp með ábyrga hagstjórn, segja ráðamenn landsins.

Katrín Jakobsdóttir
Auglýsing

Inn­viða­fjár­fest­ingar verða í for­grunni í rík­is­fjár­mál­un­um, horft til næstu ára. Ný fjár­mála­á­ætl­un, fyrir árin 2018 til 2023, hefur verið kynnt, og kemur fram í henni að fjár­fest­ingar muni vaxa umtals­vert á næsta ári, eða um 13 millj­arða króna og ná hámarki á árinu 2021. Alls er gert ráð fyrir að fjár­fest­ingar á árunum 2019 til 2023 nemi 338 millj­örðum króna.

„Um­fangs­mikil fjár­fest­ing í sam­göngu- og fjar­skipta­málum verður meðal ann­ars fjár­mögnuð með arð­greiðslum frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum í eigu rík­is­ins. Alls er reiknað með að fram­lög nemi 124 ma.kr. á tíma­bil­inu og að frá árinu 2019 bæt­ist við sér­stök árleg fram­lög til þriggja ára upp á 5,5 ma.kr. Gert ráð fyrir að ljós­leið­ara­væð­ingu lands­ins ljúki árið 2020,“ segir meðal ann­ars í sam­an­tekt úr áætl­un­inni, en for­menn stjórn­ar­flokk­anna, Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Sig­urður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu­ráð­herra, kynntu áætl­un­inni í dag.

Samneyslan sem hlutfall af landsframleiðslu.

Auglýsing

Alls er gert ráð fyrir tæp­lega 75 ma.kr. í fjár­fest­ingu í sjúkra­húss­þjón­ustu og fer mest til bygg­ingar nýs Land­spít­ala við Hring­braut. Fram­kvæmdir við bygg­ingu nýs með­ferð­ar­kjarna hefj­ast á þessu ári en meg­in­þungi fram­kvæmda verður á árunum 2020-2023.

Í áætl­un­inni er einnig gert ráð fyrir að ráð­ist verði í upp­bygg­ingu á innviðum og önnur verk­efni á fjöl­sóttum stöðum í nátt­úru Íslands og öðrum ferða­manna­stöð­um.

Skatta­lækk­anir

Rík­is­stjórnin stefnir á að lækka skatta á næstu árum, og verður meðal ann­ars banka­skattur lækk­að­ur. Hann fer úr  0,376 pró­sent í 0,165 pró­sent, en for­svars­menn allra fjár­mála­fyr­ir­tækja lands­ins hafa gagn­rýnt skatt­inn leng­i. 

Áfram er stefnt að því að draga úr álög­um, gera skatt­heimtu sann­gjarn­ari og tryggja skil­virkt skatt­eft­ir­lit. „Rík­is­stjórnin mun eiga sam­tal við aðila vinnu­mark­að­ar­ins um sam­spil tekju­skatts og bóta­kerfa á árinu, en í áætl­un­inni er gengið út frá að tekju­skattur lækki í neðra skatt­þrepi og geti lækkað um 1 pró­sentu­stig í áföngum á áætl­un­ar­tím­an­um,“ segir í sam­an­tekt­inni.

Um leið er stefnt að heild­ar­end­ur­skoðun tekju­skatts ein­stak­linga, sam­hliða end­ur­skoðun bóta­kerfa. Þar er horft til stuðn­ings hins opin­bera við barna­fjöl­skyldur og vegna hús­næð­is­­kostn­að­ar, með „mark­viss­ari fjár­hags­legum stuðn­ingi við efna­minni heim­il­i.“

Trygg­ing­ar­gjald lækkar

Gert er ráð fyrir lækkun trygg­inga­gjalds um 0,25% á árinu 2019, úr 6,85% í 6,6%. Frek­ari lækkun ræðst m.a. af nið­ur­stöðu sam­ráðs við aðila vinnu­mark­að­ar­ins um útfærslu rétt­inda, sem fjár­mögnuð eru með trygg­inga­gjaldi, og afkomu rík­is­sjóðs. Virð­is­auka­skattur á bækur verður afnum­inn í byrjun árs 2019 og ári síðar verða höf­unda­rétt­ar­greiðsl­ur, sem við­ur­kennd rétt­hafa­sam­tök inn­heimta, skatt­lagðar sem eign en ekki tekj­ur.

Hér má sjá hvernig heildarafkoma ríkissjóðs mun þróast, samkvæmt áætluninni.

Skattaí­vilnun vegna þró­un­ar­kostn­aðar verður aukin á árinu 2019 og stefnt að afnámi þaks­ins síðar á tíma­bil­inu. Skatt­stofn fjár­magnstekju­skatts verður end­ur­skoð­aður með það að mark­miði að skatt­leggja raun­á­vöxt­un, en áhrif þeirra breyt­inga koma fram árið 2020.

Í upp­hafi árs var kolefn­is­gjald á elds­neyti hækkað um 50% og er fyr­ir­hugað að hækka gjaldið um 10% árið 2019 og aftur 2020. Skoð­aðar verða leiðir til gjald­töku af ferða­mönn­um. Miðað er við að gjaldið verði lagt á frá og með árinu 2020.

„Í fjár­mála­á­ætlun er gert ráð fyrir áfram­hald­andi afgangi af rekstri ríkis og sveit­ar­fé­laga öll ár áætl­un­ar­innar í sam­ræmi við þá fjár­mála­stefnu sem lögð var fram sam­hliða fjár­lögum árs­ins 2018 og Alþingi hefur nú sam­þykkt. Góður árangur hefur náðst við að lækka skuldir rík­is­sjóðs frá því þær náðu hámarki árið 2012. Stefnt er að því að heild­ar­skuldir hins opin­bera sam­kvæmt við­miðum laga um opin­ber fjár­mál fari undir lög­boðið 30% við­mið í árs­lok 2019, eða ári fyrr en fjár­mála­stefnan gerir ráð fyrir og verði um 22% í árs­lok 2023,“ segir í sam­an­tekt­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent