Evrópusambandið tilkynnti fyrr í dag að ákveðið hafi verið að styrkja nýsköpunarstarfsemi 257 lítilla og meðalstórra fyrirtækja í 31 landi. Sex íslensk fyrirtæki eru meðal styrkþega, en Ísland tekur þátt í fjölmörgum samkeppnissjóðum Evrópusambandsins á grundvelli EES-samstarfsins – Samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Evrópusambandinu.
Í henni kemur jafnframt fram að tilgangurinn sé að hjálpa fyrirtækjunum til að koma afrakstri nýsköpunarverkefna þeirra fyrr á markað en ella.
Rannsókna- og nýsköpunarsjóðurinn Horizon 2020 styrkir þau fyrirtæki sem höfðu bestu áætlanirnar til að klára ýmiss konar nýsköpunarverkefni. Alls bárust 2009 umsóknir, samkvæmt tilkynningunni.
„Þetta er enn eitt dæmið um þann gífurlega ávinning sem Ísland hefur af EES-samstarfinu. Íslendingar slá á sumum sviðum öll met og fá tvöfalt meira fé til baka úr sameiginlegum sjóðum Evrópusambandsins miðað við hvað þeir leggja inn í þá. En þetta er bara hálf sagan. EES-samstarfið hefur gert íslenskum frumkvöðlum – úr atvinnulífinu og í menntakerfinu – kleift að vera í samstarfi og samkeppni við kollega sína út um alla Evrópu og víðar.
Nýsköpunarfyrirtæki, sem ættu ef til vill erfitt með að þrífast í 350.000 manna umhverfi Íslands, komast beint á 500 milljóna alþjóðamarkað, með öllum þeim tækifærum sem því fylgir, í gegnum EES. Og þau þurfa að standast mjög strangar kröfur til að fá að auki styrki frá Evrópusambandinu. Það væri athyglisvert að sjá úttekt á því, hversu mjög nýsköpunar-, rannsókna- og vísindastarf allt á Íslandi hefur tekið framförum á þessum 25 árum, sem bein afleiðing af þátttöku í samkeppnissjóðum ESB,“ segir Michael Mann, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi.
Fimmtungur íslenskra umsókna skilar árangri
Enn fremur segir í tilkynningunni að ekkert land standi sig betur í að fá SME-styrki úr sjóðum Evrópusambandsins en Ísland, því fimmtungur umsókna íslenskra aðila skilar árangri. Næstu lönd á eftir eru með 13 prósent árangurshlutfall, og allt niður í 1 prósent.
Íslensku fyrirtækin eru:
- Þula á Akureyri • Curio í Hafnarfirði
- ICECAL í Mosfellsbæ
- SAReye í Mosfellsbæ
- Activity Stream í Reykjavík
- Skynjar Technologies í Reykjavík
Nokkur verkefni af þeim 257 sem styrkt eru að þessu sinni:
- Götuljós knúin sólarrafhlöðum
- Hugbúnaður sem auðveldar eftirlit með framleiðsluferli iðnfyrirtækja
- Ný tækni til að greina kæfisvefn
- Nýtt farandgreiðslukerfi, líkt og posar
- Pökkunarvél sem nýtir umhverfisvænt efni í umbúðir
Á þessu fyrsta stigi SME-styrkja fyrir smá og meðalstór fyrirtæki eru veittar 50.000 evrur til hvers fyrirtækis, sem eru tæplega 6,1 milljón krónur, til að búa til viðskiptaáætlun. Þau munu fá aðgang að sérstakri þjálfun og aðstoð til að flýta fyrir viðskiptum, en þetta er þjónusta Evrópska nýsköpunarráðsins, sem hefur nýlega verið sett á laggirnar. Einnig verður fyrirtækjunum veitt færi til að sækja alþjóðlegar viðskiptakaupstefnur utan Evrópu.
Á Íslandi er það Rannís sem hefur umsjón með samstarfsáætlunum ESB og á stóran þátt í árangri Íslands, segir í tilkynningu ESB. „Flest íslensku fyrirtækjanna hafa til að mynda áður fengið styrki úr Tækniþróunarsjóði Rannís og má segja að grunnurinn hafi þar verið lagður að árangri hjá sjóðum ESB. Með styrkveitingunni í dag eru SME-styrkir til íslenskra fyrirtækja komnir vel yfir milljarð króna, sem þó er bara brot af þeim Evrópusambandsstyrkjum sem íslenskir aðilar hafa fengið í heildina. Fulltrúi Rannís situr í stjórnarnefnd SME-styrkjanna.“