Ráðherra segir yfirlýsingu ljósmæðra og BHM „óskiljanlega og tilhæfulausa“

Heilbrigðisráðherra segir yfirlýsingu frá ljósmæðrum og BHM ekki í takt við veruleikann.

Svandís Svavarsdóttir
Auglýsing

„Yf­ir­lýs­ing ljós­mæðra og BHM er að mínu mati bæði óskilj­an­leg og til­hæfu­laus og ég hafna þeirri túlkun á mínum orðum sem þar kemur fram“ segir Svan­dís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra í yfir­lýs­ing­u. 

Eins og kunn­ugt er þá er kjara­deila ljós­mæðra og rík­is­ins enn óleyst.

Fyrr í dag sendu ljós­mæður og BHM frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu, þar sem Svan­dís var gagn­rýnd fyrir orð sín á þingi í dag. Í yfir­lýs­ingu ljós­mæðra og BHM, sem Áslaug Íris Vals­dóttir Petty, for­maður LMFÍ, og Þór­unn Svein­bjarn­ar­dótt­ir, for­maður BHM, skrifa und­ir, segir að Svan­dís hafi látið frá sér orð á Alþingi, sem mætti skilja með þeim hætti, að ljós­mæður geti sjálfum sér um kennt um að þær lækki í launum við að bæta við sig námi. „Í fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í gær lét heil­brigð­is­ráð­herra, Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, orð falla sem skilja má sem svo að hún telj­i að ljós­mæð­ur­ ­geti sjálfum sér um kennt að þær lækki í launum við að bæta við sig námi. Þessa stöðu megi rekja til þess að ljós­mæður hafi valið að vera í sér­stöku stétt­ar­fé­lagi innan BHM. Ráð­herr­ann gaf í skyn að hags­munum ljós­mæðra yrð­i betur borgið ef Ljós­mæðra­fé­lag Íslands, sem var stofnað árið 1919, yrði lagt niður og ljós­mæð­ur­ ­sæktu um aðild að Félagi íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga. LMFÍ og BHM lýsa undrun og van­þóknun á þessum ummælum heil­brigð­is­ráð­herra. Það blasir við öllum sem það vilja sjá að full­kom­lega óeðli­leg­t er að ljós­mæður lækk­i í launum við það að bæta við sig tveggja ára ströngu háskóla­námi ofan á hjúkr­un­ar­fræði­nám. Frá­leitt er að rök­styðja eða rétt­læta slíka launa­lækkun með vísan til þess að ljós­mæður hafi val­ið að vera í sér­stöku stétt­ar­fé­lagi innan heild­ar­sam­taka háskóla­mennt­aðra á íslenskum vinnu­mark­aði. Staðan í kjara­við­ræðum ljós­mæðra við rík­ið er alfarið á ábyrgð stjórn­valda sem hafa hafnað því að koma til móts við sjálf­sagðar og eðli­legar kröfur ljós­mæðra,“ segir í fyrr­nefndri yfir­lýs­ing­u. 

Auglýsing

Svan­dís hafnar þess­ari túlkun alfar­ið. Hún var spurð að því í fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í gær hvort hún telji starfs- og kjar­aum­hverfi ljós­mæðra ásætt­an­legt og eðli­legt með til­liti til sex ára háskóla­mennt­unar og mik­illar sér­hæf­ingar og hvort brugð­ist verði við af hálfu stjórn­valda, hvernig það verði gert og hvort eitt­hvert við­bún­að­ar­plan sé til staðar ef ekki semst. 

Í svari sínu sagði ráð­herra meðal ann­ars að hún væri þeirrar skoð­unar að meta eigi vinnu­fram­lag ljós­mæðra til launa og til sam­fé­lags­legrar virð­ing­ar: „Ég hef alltaf verið þeirrar skoð­unar að vinnu­fram­lag og starf ljós­mæðra væri sér­stak­lega mik­il­vægt. Þarna er um að ræða kvenna­stétt sem sinnir konum á gríð­ar­lega dýr­mætum og mik­il­vægum tíma í lífi þeirra og mér finnst að það eigi að meta að verð­leik­um.“

Þá sagð­ist Svan­dís enn fremur hafa beitt sér í máli ljós­mæðra í gegnum for­stjóra Land­spít­al­ans, til að freista þess að gera það sem hægt sé til að bæta starfs­um­hverfi og mögu­lega vaktaum­hverfi ljós­mæðra. Það hefði verið gert og því spilað inn í kjara­við­ræð­urnar og von­andi gæti það orðið til að leysa þessa við­kvæmu deilu. „Ég ber hag heil­brigð­is­stétta fyrir brjósti, ljós­mæðra sem ann­arra, enda veit ég að gott heil­brigð­is­kerfi verður ekki rekið nema þessar stéttir njóti sann­mæl­is, virð­ingar og launa í sam­ræmi við ábyrgð og mik­il­vægi starfa þeirra,“ segir Svan­dís í yfir­lýs­ing­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent