Meirihlutinn í borgarstjórn er fallinn samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og vefmiðilsins frettabladid.is, en greint er frá henni í dag.
Sjálfstæðisflokkurinn væri með rúmlega 28 prósenta fylgi en Samfylkingin, með Dag B. Eggertsson borgarstjóra í broddi fylkingar, væri næststærsti flokkurinn með tæp 27 prósent. Píratar og Vinstri græn fengju tæplega 11 prósent hvor flokkur.
Viðreisn fengi tæplega 8 prósent. Miðflokkurinn og Flokkur fólksins eru með ríflega 4 prósenta fylgi og Framsóknarflokkurinn með 4 prósent.
Samkvæmt þessu fengju Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin sjö menn hvor flokkur. Píratar, VG og Viðreisn fengju tvo menn hver. Flokkur fólksins, Miðflokkurinn og Framsóknarflokkurinn fengju einn mann hver. Eins og fram hefur komið verða 23 borgarfulltrúar kjörnir en hingað til hafa borgarfulltrúarnir verið 15.
Kosið verður 26. maí og má því segja að lokspretturinn sé framundan.