Bjarni: Algjörlega „óaðgengilegar kröfur“ ljósmæðra

FJármálaráðherra segir að ekki fari vel á því að metast um hverjir beri bestan hug til ljósmæðra. Sjálfur hefur hann farið fjórum sinnum á fæðingardeildina.

Bjarni_ben_2017_a.png
Auglýsing

„Ég get bara sagt það alveg eins og er þannig að það dylj­ist engum að þær kröfur sem settar hafa verið fram núna eru fyrir samn­inga­nefnd rík­is­ins alger­lega óað­gengi­leg­ar.“

Þetta sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, þegar rætt um þá stöðu sem upp er í komin í kjara­deilu ljós­mæðra og rík­is­ins.

Hann árétt­aði að ekki færi vel á því, að reyna að setja málin í þann far­veg, að ekki væri borin virð­ing fyrir störfum ljós­mæðra. Hann hefði sjálfur farið fjórum sinnum á fæð­ing­ar­deild­ina og vissi vel hversu mik­il­væg störfin væru. 

Auglýsing

For­maður samn­inga­nefndar rík­is­ins er Gunnar Björns­son, skrif­stofu­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­in­u. 

Bjarni sagði að góður gangur hefði verið í við­ræð­un­um, en síðan hefðu kröfur ljós­mæðra breyst og það hefði leitt til þeirrar stöðu sem nú væri komin upp. 

Ekki hefur verið greint frá því, nákvæm­lega, hverjar séu kröfur ljós­mæðra að öðru leyti en því, að þær krefj­ast þess að menntun þeirra verði metin til launa. Það er sex til sjö ára nám að baki ljós­mæðra­starf­inu, þegar starfs­nám er tekið með í reikn­ing­inn, en í mörgum til­vikum þá lækka ljós­mæður í launum við það, að bæta við sig nám­inu ofan á hjúkr­un­ar­fræði­nám­ið.

Hall­dóra Mog­en­sen, þing­maður Pírata og for­maður vel­ferð­ar­nefnd­ar, sagði að harð­línu­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar í kjara­málum eiga eftir að bitna all­veru­lega á ljós­mæðr­um. „Það gengur ekki að segja að ábyrgðin sé hjá stétt­ar­fé­lög­unum vegna þess að síð­ast þegar ljós­mæður fóru í verk­fall sam­þykkti fjár­mála­ráð­herra lög á verk­fall­ið. Þær fengu ekki að semja.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent