Á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum nú í kvöld var samþykktur framboðslisti fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 26. maí, og verður Elliði Vignisson, bæjarstjóri og oddviti, í fimmta sæti listans.
Í tilkynningu segist hann taka alvarlega þá umræðu sem hefur verið á meðal Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum að undanförnu, um þörfina á valddreifingu. „Eftir að hafa leitt listann úr fyrsta sæti í 12 ár tek ég alvarlega umræðu um þörfina á valddreifingu. Ég get að mörgu leyti tekið undir þá skoðun að það fylgir því lýðræðishalli að vera í senn í öruggasta sætinu, vera bæjarstjóraefni, oddviti og sá sem er með langmestu reynsluna. Þessu vil ég mæta með því að færa mig niður í framboðssæti sem að við lítum á sem sæti varabæjarfulltrúa. Ég vil líka líta á það sem skref til að skapa aukna sátt að víkja sætis fyrir ungt og nýtt fólk sem annars hefði ef til vill orðið að víkja af vettvangi bæjarmálanna. Ég kvíði því ekki að leiða listann sem varabæjarfulltrúi enda ríkir mikill einhugur hjá því góða fólki sem skipar framboðlistann. Saman ætlum við leiða Sjálfstæðisflokkinn til sigurs og gera góðan bæ enn betri á komandi kjörtímabili,“ segir í Elliði.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir skipar fyrsta sæti listans, en þetta er í fyrsta skipti í 20 ár sem kona skipar fyrsta sæti á lista Sjálfstæðismanna í Eyjum.
„Ég er í senn auðmjúk og þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt með því að taka fyrsta sæti á framboðslistanum. Það er ekki sjálfgefið að ungri konu sé falið hlutverk sem þetta og hvað þá að tvær konur skipi tvö efstu sætin. Þetta tel ég bæði sýna styrk okkar sem flokks sem og þann hug sem reynslumikið fólk í starfi okkar ber til ungs fólks og kvenna. Eitt af því sem helst einkennir okkur frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins er einlægur vilji til þess að halda áfram að gera samfélagið okkar betra og til að gera það mögulegt hikar fólk ekki við að víkja til hliðar eigin hagsmunum fyrir hagsmuni heildarinnar. Við viljum öll taka þátt í þeim verkefnum sem framundan eru af áhuga og festu, til heilla fyrir íbúa Vestmannaeyja,“ segir Hildur í tilkynningu.
Framboðslistinn er sem hér segir:
1.Hildur Sólveig Sigurðardóttir, sjúkraþjálfari
2.Helga Kristín Kolbeins, skólameistari
3.Trausti Hjaltason, framkvæmdastjóri
4.Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri
5.Elliði Vignisson, oddviti og bæjarstjóri
6.Margrét Rós Ingólfsdóttir, félagsfræðingur
7.Sigursveinn Þórðarson, svæðisstjóri
8.Páll Marvin Jónsson, framkvæmdastjóri
9.Andrea Guðjóns Jónasdóttir, sjúkraliði
10.Gísli Stefánsson, æskulýðsfulltrúi
11.Agnes Stefánsdóttir, framhaldsskólanemi
12.Vignir Arnar Svafarsson, sjómaður
13.Klaudia Beata Wróbel, nemi og túlkur
14.Bragi Ingiberg Ólafsson, eldri borgari