Stjórnarráðið keypti áfengi fyrir 3,5 milljónir á átta mánuðum

Stjórnarráðið hefur alls greitt 3.509.626 krónur til ÁTVR frá því í ágúst í fyrra til síðustu mánaðarmóta. Langmest hefur verið greitt til ÁTVR frá utanríkisráðneytinu eða 1.316.870 krónur.

Vínríkisstjórn
Auglýsing

Ráðu­neytin hafa greitt Áfeng­is- og tóbaks­verslun rík­is­ins rúm­lega 3,5 millj­ónir frá því heima­síðan opn­ir­reikn­ing­ar.is var opnuð í sept­em­ber á síð­asta ári. Sam­kvæmt tölum sem Kjarn­inn hefur tekið saman hefur hefur stjórn­ar­ráðið alls greitt 3.509.626 krónur til ÁTVR frá því í ágúst í fyrra til síð­ustu mán­að­ar­móta.

Alls gera það 14.442 krónur á dag sem greiddar eru til Áfeng­is- og tóbaks­versl­unar rík­is­ins frá stjórn­ar­ráð­inu.

Útgjöldin eru ýmist flokkuð sem risna, gjafir til starfs­manna eða risna til starfs­manna eða starfs­manna­fé­laga.

Auglýsing

Lang­mest hefur verið greitt til ÁTVR frá utan­rík­is­ráð­neyt­inu eða 1.316.870 krón­ur. Bæði atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið og mennta­mála­ráðu­neytið hafa kostað til rúm­lega hálfri milljón í áfengi eða tóbak á þessu tíma­bili.

Í reikn­ingnum má finna heild­ar­fjár­hæðir sem greiddir eru í hvert skipti til fyr­ir­tæk­is­ins af hverju og einu ráðu­neyti. Reikn­ing­arnir eru ekki sund­ur­lið­að­ir. Þannig er í októ­ber 2017 greiddur reikn­ingur upp á rúma milljón af utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Mynd: Af heimasíðu ÁTVR.Hins vegar má finna reikn­inga upp á umtals­vert lægri fjár­hæð­ir, eins og frá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu (sem nú hefur verið skipt upp í sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyti ann­ars vegar og dóms­mála­ráðu­neyti hins veg­ar) reikn­ing sem var greiddur upp á fjár­hæð 4.799 krón­ur, sem sam­svar nákvæm­lega kostn­aði við eina Áka­vít­is­flösku sam­kvæmt upp­lýs­ingum á heima­síðu ÁTVR.

Vef­ur­inn opn­ir­reikn­ing­ar.is var opn­aður í sept­em­ber 2017 af Bene­dikt Jóhann­essyni þáver­andi fjár­mála­ráð­herra með það að mark­miði að auka gagn­sæi og aðgengi almenn­ings að fjár­hags­upp­lýs­ingum rík­is­ins. Á vefnum er unnt að skoða upp­lýs­ingar um greidda reikn­inga ráðu­neyta og stofn­ana úr bók­haldi rík­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent