Velta bílaleigufyrirtækja hér á landi nam um 51 milljarði króna á síðasta ári en það er jafn há upphæð og landbúnaðurinn íslenski velti á nýliðnu ári skv. nýjum bráðabirgðatölum frá Hagstofu Íslands.
Frá þessu er greint í ViðskiptaMogganum, fylgiriti Morgunblaðsins um viðskipti, í dag, en vitnað er til nýrrar skýrslu Íslandsbanka um ferðaþjónustu í umfjölluninni.
Í skýrslunni er því spáð að tekjuvöxtur verði um 10 prósent í ferðaþjónustunni á þessu ári, sem þýðir að gjaldeyristekjur verða um 570 milljarðar króna.
Mikil breyting hefur orðið á stöðu atvinnuveganna síðasta áratuginn, og er mikill upgangur bílaleiga til marks um það. „Þannig hefur landbúnaðurinn vaxið úr 31,6 milljörðum árið 2008 í ríflega 51 milljarð á síðasta ári (á verðlagi hvors árs fyrir sig) og nemur raunvöxtur greinarinnar um 12,2%. Á sama tíma hafa umsvif bílaleiganna vaxið úr 7,6 milljörðum árið 2008 í um 51 milljarð á síðasta ári (á verðlagi hvors árs fyrir sig),“ að því er segir í ViðskiptaMogganum.
Í skýrslu Íslandsbanka um stöðu ferðaþjónustunnar kemur fram að floti bílaleigufyrirtækjanna hafi fimmfaldast frá árinu 2007 og að þegar mest lét síðastliðið sumar hafi bílar á þeirra vegum á götunum verið 25 þúsund talsins.