Jarðboranir til sölu

Um 150 starfsmenn vinna hjá Jarðborunum en ákveðið hefur verið að setja félagið í söluferli.

Jarðboranir
Auglýsing

Ákveðið hefur verið að hefja sölu­ferli á öllu hlutafé í Jarð­bor­unum hf., sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans.

Jarð­bor­anir eru í eigu SF III, sem er ­fé­lag í rekstri Stefnis hf., einka­fjár­festa og starfs­manna félags­ins, en hjá því stafa um 150 manns. Sam­kvæmt til­kynn­ingu frá árinu 2012, þegar SF III keypti hlut í Jarð­bor­un­um, þá voru eig­endur þess félags Festa líf­eyr­is­­sjóð­ur, Gildi líf­eyr­is­­sjóð­ur, Líf­eyr­is­­sjóður starfs­­manna rík­­is­ins, Sam­herji hf. og Stefn­ir - Íslenski at­hafna­­sjóð­ur­­inn I. Ein­hver hreyf­ing hefur þó verið á hluta­fénu síð­an.

Hlutafé stærstu hluthafa Jarðborana, samkvæmt ársreikningi 2016, er með þessum hætti. Baldvin Þorsteinsson, er stærsti einstaklingshluthafinn.

Auglýsing

Í lok árs 2016 námu heild­ar­eignir félags­ins tæp­lega 6,5 millj­örðum króna og eigið fé rúm­lega þremur millj­örð­um, sam­kvæmt árs­reikn­ingi.

Sögu Jarð­bor­ana má rekja aftur til árs­ins 1945 þegar Jarð­bor­anir rík­is­ins hófu starf­sem­i. 

Það var síð­an árið 1986 að Jarð­bor­anir í núver­andi mynd var stofn­að. Meg­in­mark­miðið með stofnun Jarð­bor­ana árið 1986 var að við­halda og auka þá þekk­ingu sem hafði þegar mynd­ast á Íslandi við jarð­hita­bor­an­ir. 

Jarð­bor­anir er leið­andi fyr­ir­tæki á Íslandi á sínu sviði og starfar á mörk­uðum víða um heim. Félagið á og rekur sex stóra bora auk safns minni bora. Fyr­ir­tækið hefur öðl­ast mikla reynslu á und­an­förn­um ára­tugum og er á árinu 2018 með verk­efni í fimm löndum í fjórum heims­álf­um. 

Íslands­banki hefur umsjón með sölu­ferl­inu, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent