VR: Þensluskeiði íslensks efnahagslífs lokið

Samkvæmt VR er toppi hagsveiflunnar náð á Íslandi og mun næsta niðursveifla vera innflutt en ekki heimatilbúin.

hallgrimskirkja_14317582957_o.jpg
Auglýsing

Ýmis­legt bendir til þess að þenslu­skeiði íslensks efna­hags­lífs und­an­farin ár sé nú lok­ið. Hlut­fall starf­andi hefur lækkað stöðugt frá því í apríl á síð­asta ári og atvinnu­leysi hefur auk­ist lít­il­lega. Hægt hefur á hag­vexti sem var 1,5 pró­sent á fjórða árs­fjórð­ungi 2017 sem er umtals­vert minna en árs­fjórð­ung­ana á und­an. Og þá má einnig bæta við að dregið hefur úr hækk­unum hús­næð­is­verð, sem þó eru ennþá umtals­verð­ar. 

Þetta kemur fram í nýjasta efn­hags­yf­ir­liti VR sem birt­ist í dag. 

Sam­kvæmt VR er íslenska hag­kerfið þó ekki eins brot­hætt nú og það var skömmu fyrir hrunið 2008. Ástæðan sem gefin er er sú að skuldir eru mun lægri nú því árin fyrir hrun ein­kennd­ust af mik­illi aukn­ingu í skuld­setn­ingu, bæði fyr­ir­tækja og heim­ila. Næsta nið­ur­sveifla verði því eflaust inn­flutt en ekki heima­til­bú­in, eins og fyrir tæpum ára­tug. Það verði því að telj­ast ólík­legt að árið 2019 verði end­ur­tekn­ing á árinu 2009.

Auglýsing

Hag­kerfið ekki eins brot­hætt og fyrir hrun

Í yfir­lit­inu segir að ýmsir hag­vísar bendi nú til þess að þeim mikla upp­gang­i ­sem verið hefur í íslensku efna­hags­lífi sé lok­ið. Hlut­fall starf­andi hefur lækkað allt frá apríl 2017 og atvinnu­leysi hefur auk­ist örlít­ið á sama tíma­bil­i. Þá hefur hægt á hækk­unum hús­næð­is­verðs, sem þó eru enn mikl­ar.

„Í sein­ustu upp­sveiflu, 2003 til 2007, hækk­aði fast­eigna­verð langt umfram út­borguð laun og var bólan á fast­eigna­mark­aði vel sýni­leg strax árið 2005. Sú bóla var þó byggð á mik­illi aukn­ingu í skuldum heim­il­anna. Núver­andi hækkun fast­eigna­verðs er vegna lít­ils fram­boðs fast­eigna en ekki eins mik­ið ­vegna aukn­ingar í skuld­um. Einnig hefur hægt nokkuð á hag­vext­i,“ segir í yfir­lit­inu.

Fyrir árið 2017 í heild var hag­vöxtur á mann aðeins 1,1 pró­sent. Það er nokkuð undir 1,7 pró­sent með­al­hag­vexti á mann frá 1990. ­Gengi krón­unnar er einnig nokkuð sterkt sögu­lega séð, segir í yfir­lit­inu. „Sterkt gengi er tví­eggja sverð. Ann­ars vegar er sterkt ­gengi jákvætt fyrir verð­lags­þróun og heldur verð­bólg­unn­i í skefj­um. Hins vegar hefur sterkt gengi nei­kvæð áhrif á út­flutn­ings­grein­arnar svo sem ferða­manna­iðn­að­inn og ­sjáv­ar­út­veg­inn.“ 

Annað hrun mun eiga sér stað á Íslandi

Hag­kerfið er þó ekki eins brot­hætt og það var fyrir hrun þar sem skuldir heim­ila og fyr­ir­tækja eru mun lægri en á þeim tíma, sam­kvæmt VR. Sein­ast þegar þessi þróun sem talin er upp að ofan átti sér stað var eitt stærsta efna­hags­hrun Íslands­sög­unnar rétt handan við horn­ið. 

Höf­undar yfir­lits­ins velta þess vegna fyrir sér hvort annað hrun sé í vændum á Íslandi. „Eitt er víst og það er að annað hrun/­nið­ur­sveifla mun eiga ­sér stað á Íslandi. Stóra spurn­ingin er hins vegar hvenær það muni ger­ast. Þó margir hag­vísar bendi til þess að far­ið sé að hægja á í íslensku efna­hags­lífi líkt og 2008 er ólík­leg­t að 2019 muni líta út líkt og 2009. Helsta ástæðan er ­tölu­vert hag­stæð­ari skulda­staða heim­ila og fyr­ir­tækja. 

Árin fyrir hrunið árið 2008 ein­kennd­ust af mik­illi aukn­ing­u í skuld­setn­ingu fyr­ir­tækja og heim­ila. Aukn­ingin leiddi til­ hækk­unar á eigna­verði og auk­ins hag­vaxt­ar. Næsta kreppa á Íslandi verður eflaust inn­flutt, þ.e. kreppa er­lendis sem smit­ast muni til Ísland, frekar en að ver­a heima­til­búin líkt og seinast,“ segir í yfir­lit­in­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent