Framkvæmdastjórar allra flokka sem sæti eiga í nefnd forsætisráðherra um fjármál stjórnmálaflokka, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau lýsa andúð á óhróðri og undirróðursstarfsemi í kosningabaráttu og ásetja sér að vinna gegn slíku.
„Kosningabarátta í aðdraganda kosninga er lykilþáttur í lýðræðislegri stjórnskipan og mikilvægt að hún sé málefnaleg og reglum samkvæm svo að kjósendur geti tekið upplýsta ákvörðun. Nafnlaus óhróður eða undir fölsku flaggi á ekki að líðast. Við framkvæmdastjórar eða fulltrúar flokkanna átta sem sæti eiga þingi, erum sammála um að girða þurfi fyrir að áróður og óhróður, sem enginn veit hver hefur í frammi eða kostar, birtist um alla samfélags- fjölmiðla- og myndbandaveitur, án þess að hægt sé að kalla neinn til ábyrgðar,“ segir í yfirlýsingunni.
Þau segja kosningabaráttu margslungið samtal þjóðarinnar og þar eigi stjórnmálaflokkarnir alls ekki að vera einráðir. Lög um hvernig kosningabarátta sé rekin og fjármögnuð þurfi því að ná yfir alla sem heyja slíka baráttu, ekki aðeins flokkana sjálfa, enda séu lögin í samræmi við tjáningarfrelsisákvæði og góða lýðræðisvenju. „Það er markmið okkar að finna leiðir í þeirri vinnu sem við eigum fyrir höndum til að auka gagnsæi og ábyrgð allra sem vilja hafa áhrif á kosningar.“
Þau segja það von sína að barátta flokkanna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar verði sönn, gegnsæ og málefnaleg og að öll framboð taki stöðu með því markmiði.
Undir yfirlýsinguna rita:
Björg Eva Erlendsdóttir, formaður framkvæmdastjórnar Vinstri grænna, Þorgerður Jóhannsdóttir, skrifstofustjóri Samfylkingarinnar, Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar, Hólmfríður Þórisdóttir, fulltrúi Miðflokksins, Erla Hlynsdóttir, framkvæmdastjóri Pírata, Helgi Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Framsóknar, Magnús Þór Hafsteinsson, fulltrúi Flokks fólksins og Þórður Þórarinsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.