Sigmundur Davíð gagnrýnir umfjöllun RÚV

Formaður Miðflokksins segist ekki hafa komið að stofnun vefsíðunnar Veggurinn og aldrei boðist til að greiða fyrir síðuna eða fréttir á henni.

Sigmundur
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, gerir athuga­semdir við fram­setn­ingu fréttar Rík­is­út­varps­ins þar sem kemur fram að hann hafi greitt Við­ari Garð­ars­syni rúm­lega eina milljón króna úr eigin vasa vegna vinnu við kosn­inga­bar­áttu fyrir hálfu öðru ári síð­an. Segir enn fremur í frétt­inni að Sig­mundur Davíð hafi þá verið nýfall­inn sem for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þessu neitar Sig­mundur Davíð í nýrri færslu á Face­book-­síðu sinn­i. 

Hann segir að vilj­andi sé sett fram vill­andi fyr­ir­sögn og auk þess sé gefið í skyn í grein­inni að hann hafi greitt fyrir rekstur síð­unnar Vegg­ur­inn.­is. „Loks er gefið til kynna að ég hafi greitt fyrir vinnu sem var unnin þegar ég var „ný­fall­inn sem for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins”. Það er rangt. Sá útlagði kostn­aður sem ég ábyrgð­ist fyrir flokk­inn kom allur til á meðan ég var for­maður hans og löngu áður en and­stæð­ingar mínir í flokknum hófu sínar aðgerðir (og um það leyti sem þeir lýstu því yfir að ekki kæmi til greina að fara gegn mér og sögðu að ég væri að sinna því mik­il­væga hlut­verki að und­ir­búa kosn­inga­bar­áttu flokks­ins),“ segir hann í færsl­unn­i. 

Hann seg­ist ekki hafa komið að stofnun vef­síð­unnar og aldrei hafa boð­ist til að greiða fyrir síð­una eða fréttir á henni. Hann hafi heldur ekki verið beð­inn um það.

Auglýsing

Sig­mundur Davíð segir aftur á móti að síðan hafi oft verið á sömu línu og hann og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn á þeim tíma í stórum málum eins og viður­eign­inni við vog­un­ar­sjóði, bar­átt­unni við verð­trygg­ingu, mik­il­vægi byggða­mála o.fl. (og þ.a.l. á annarri línu en Rúv). „Síðan fjall­aði líka mikið um þá sem hafa verið leið­andi í bar­átt­unni fyrir breyt­ingum í verka­lýðs­hreyf­ing­unni, líf­eyr­is­sjóði, orku­mál og ýmis­legt fleira. Og jú, ég man ekki betur en að síðan hafi verið gagn­rýnin á Rúv. Þar liggur e.t.v. hund­ur­inn graf­inn.“

Jafn­framt seg­ist hann hafa sett upp síð­una panama­skjol­in.is til að birta allar upp­lýs­ingar og svör við öllum spurn­ingum um þau mál. Ástæð­una sem hann gefur fyrir því er sú að RÚV hafi ekki gert það og sé það mál ótengt þessu.

„Það kom ýmis­legt áhuga­vert fram í rétt­ar­höld­unum í mál­inu sem vísað er til en það virð­ist eng­inn áhugi vera á því hjá „að­dá­enda­klúbbn­um” sem hengdi „skot­marks­mynd” af mér upp á vegg frétta­stof­unn­ar.

Svo segi ég eins og Dag­ur, er ekki hægt að birta skárri mynd af mér með frétt­inni? (Þótt ég við­ur­kenni reyndar að í mínu til­viki gæti það verið erfitt),“ segir Sig­mundur Dav­íð.

Þessir eru enn við sama hey­garðs­horn­ið. Hér er vilj­andi sett fram vill­andi fyr­ir­sögn og auk þess gefið í skyn í...

Posted by Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son on Tues­day, April 17, 2018


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent