Tölvuþrjótar réðust á vefsíðu RÚV í gærkvöld og lá hún niðri í á fjórðu klukkustund, að því er segir á vef RÚV. „Árásin lýsti sér þannig að nokkrir hlekkir á síðunni vísuðu út fyrir ruv.is og á vafasamt efni. Þegar þetta kom í ljós var vefnum lokað og hann ekki settur í loftið aftur fyrr en tryggt var að árásinni hefði verið hrundið,“ segir í umfjöllun RÚV um tölvuárásina.
Tölvuárásin var gerð á vefumsjónarkerfi ruv.is að sögn Baldvins Þórs Bergssonar, dagskrástjóra númiðla og Rásar 2. Það voru einkum notendur snjalltækja sem urðu fyrir óþægindum, og virtist sem árásin hafi beinst að þeim, að því er segir í umfjöllun RÚV.
Nú þegar hafa öryggisatriði verið yfirfarin og eiga notendur ekki að verða fyrir óþægindum vegna árásarinnar.