Konum með háskólamenntun á aldrinum 25 til 64 ára hefur fjölgað hraðar en körlum frá árinu 2003. Á síðastliðnum 14 árum hefur konum með háskólamenntun fjölgað um rúm 20 prósentustig og var um helmingur kvenna á aldrinum 25 til 64 ára með háskólamenntun árið 2017.
Þetta kemur fram í frétt Hagstofunnar í dag.
Jafnframt segir að á sama tímabili hafi körlum með háskólamenntun fjölgað um tæplega 10 prósentustig og hafi tæplega 35 prósent karla á aldrinum 25 til 64 ára verið með háskólamenntun árið 2017. „Hlutfall háskólamenntaðra var hæst í aldurshópnum 30 til 49 ára, 39 prósent hjá körlum en tæp 60 prósent hjá konum. Hins vegar voru nærri tvöfalt fleiri karlar en konur á aldrinum 25 til 64 ára með doktorspróf, 1.400 karlar á móti 800 konum.“
Í frétt Hagstofunnar kemur fram að háskólamenntuðum landsmönnum á aldrinum 25 til 64 ára hafi fjölgað um 14,7 prósentustig frá árinu 2003 en 42,4 prósent íbúa í þessum aldurshópi höfðu lokið háskólamenntun árið 2017, alls 73.600.
Á sama tíma fækkaði þeim sem eingöngu höfðu lokið grunnmenntun um rúmlega 11 prósentustig og voru þeir um 39.700 árið 2017, tæplega 23 prósent íbúa á aldrinum 25 til 64 ára. Hægari breytingar voru á fjölda þeirra sem eingöngu höfðu lokið starfs- og framhaldsmenntun en fjöldinn hefur verið á bilinu 35 til 39 prósent íbúa á aldrinum 25 til 64 ára frá árinu 2003.
Atvinnuþátttaka eykst með meiri menntun
Menntunarstig íbúa á landsbyggðinni var talsvert lægra, samkvæmt Hagstofunni, en íbúa á höfuðborgarsvæðinu árið 2017, líkt og fyrri ár. Tæplega 32 prósent íbúa á landsbyggðinni á aldrinum 25 til 64 ára höfðu eingöngu lokið grunnmenntun og var það næstum tvöfalt hærra hlutfall en á höfuðborgarsvæðinu, sem var 17,5 prósent.
Þróunin á landsbyggðinni er þó sú sama og á höfuðborgarsvæðinu, þar sem sífellt fleiri sækja sér háskólamenntun. Mestur munur eftir búsetu í aldurshópnum 25 til 64 ára var á meðal háskólamenntaðra karla en þeir voru rúmlega 43 prósent íbúa á höfuðborgarsvæðinu en tæplega 20 prósent íbúa á landsbyggðinni.
Atvinnuþátttaka var mest á meðal háskólamenntaðra einstaklinga í aldurshópnum 25 til 64 ára, tæplega 95 prósent árið 2017. Meðal þeirra sem eingöngu höfðu lokið starfs- og framhaldsmenntun var atvinnuþátttakan rúmlega 91 prósent en minnst var hún á meðal þeirra sem eingöngu höfðu lokið grunnmenntun, tæplega 79 prósent. Atvinnuleysi var mest hjá konum sem eingöngu höfðu lokið starfs- og framhaldsmenntun, 2,3 prósent. Lægst var atvinnuleysið meðal kvenna sem eingöngu höfðu lokið grunnmenntun, 1,3 prósent.