Konum með háskólamenntun fjölgar hraðar en körlum

Konum með háskólamenntun á aldrinum 25 til 64 ára hefur fjölgað hraðar en körlum frá árinu 2003.

konur.jpg
Auglýsing

Konum með háskóla­menntun á aldr­inum 25 til 64 ára hefur fjölgað hraðar en körlum frá árinu 2003. Á síð­ast­liðnum 14 árum hefur konum með háskóla­menntun fjölgað um rúm 20 pró­sentu­stig og var um helm­ingur kvenna á aldr­inum 25 til 64 ára með háskóla­menntun árið 2017. 

Þetta kemur fram í frétt Hag­stof­unnar í dag. 

Jafn­framt segir að á sama tíma­bili hafi körlum með háskóla­menntun fjölgað um tæp­lega 10 pró­sentu­stig og hafi tæp­lega 35 pró­sent karla á aldr­inum 25 til 64 ára verið með háskóla­menntun árið 2017. „Hlut­fall háskóla­mennt­aðra var hæst í ald­urs­hópnum 30 til 49 ára, 39 pró­sent hjá körlum en tæp 60 pró­sent hjá kon­um. Hins vegar voru nærri tvö­falt fleiri karlar en konur á aldr­inum 25 til 64 ára með dokt­ors­próf, 1.400 karlar á móti 800 kon­um.“

Auglýsing

Konur og karlar eftir menntunarstöðu 2003 til 2017 Mynd: Hagstofan

Í frétt Hag­stof­unnar kemur fram að háskóla­mennt­uðum lands­mönnum á aldr­inum 25 til 64 ára hafi fjölgað um 14,7 pró­sentu­stig frá árinu 2003 en 42,4 pró­sent íbúa í þessum ald­urs­hópi höfðu lokið háskóla­menntun árið 2017, alls 73.600. 

Á sama tíma fækk­aði þeim sem ein­göngu höfðu lokið grunn­menntun um rúm­lega 11 pró­sentu­stig og voru þeir um 39.700 árið 2017, tæp­lega 23 pró­sent íbúa á aldr­inum 25 til 64 ára. Hæg­ari breyt­ingar voru á fjölda þeirra sem ein­göngu höfðu lokið starfs- og fram­halds­menntun en fjöld­inn hefur verið á bil­inu 35 til 39 pró­sent íbúa á aldr­inum 25 til 64 ára frá árinu 2003.

Atvinnu­þátt­taka eykst með meiri mennt­un 

Mennt­un­ar­stig íbúa á lands­byggð­inni var tals­vert lægra, sam­kvæmt Hag­stof­unni, en íbúa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu árið 2017, líkt og fyrri ár. Tæp­lega 32 pró­sent íbúa á lands­byggð­inni á aldr­inum 25 til 64 ára höfðu ein­göngu lokið grunn­menntun og var það næstum tvö­falt hærra hlut­fall en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem var 17,5 pró­sent. 

Þró­unin á lands­byggð­inni er þó sú sama og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem sífellt fleiri sækja sér háskóla­mennt­un. Mestur munur eftir búsetu í ald­urs­hópnum 25 til 64 ára var á meðal háskóla­mennt­aðra karla en þeir voru rúm­lega 43 pró­sent íbúa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en tæp­lega 20 pró­sent íbúa á lands­byggð­inni.

Atvinnu­þátt­taka var mest á meðal háskóla­mennt­aðra ein­stak­linga í ald­urs­hópnum 25 til 64 ára, tæp­lega 95 pró­sent árið 2017. Meðal þeirra sem ein­göngu höfðu lokið starfs- og fram­halds­menntun var atvinnu­þátt­takan rúm­lega 91 pró­sent en minnst var hún á meðal þeirra sem ein­göngu höfðu lokið grunn­mennt­un, tæp­lega 79 pró­sent. Atvinnu­leysi var mest hjá konum sem ein­göngu höfðu lokið starfs- og fram­halds­mennt­un, 2,3 pró­sent. Lægst var atvinnu­leysið meðal kvenna sem ein­göngu höfðu lokið grunn­mennt­un, 1,3 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent