Miðflokkurinn vill taka RÚV af fjárlögum

Fyrsta landsþing Miðflokksins verður haldið um helgina. Í ályktunum þingsins kemur m.a. fram að flokkurinn vilji gefa almenningi hlut í ríkisbanka, setja þak á verðtryggða vexti og fjölga lögreglumönnum. Tveir þingmenn berjast um varaformannsembættið.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er einn í framboði til formanns Miðflokksins. Gunnar Bragi Sveinsson sækist eftir embætti varaformanns.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er einn í framboði til formanns Miðflokksins. Gunnar Bragi Sveinsson sækist eftir embætti varaformanns.
Auglýsing

Mið­flokk­ur­inn vill að RÚV verði tekið af fjár­lögum og að rík­is­fjöl­mið­ill­inn fjár­magni sig ein­vörð­ungu með áskrift­ar­sölu og á aug­lýs­inga­mark­aði. Þá vill flokk­ur­inn einnig að virð­is­auka­skattur á áskriftum fjöl­miðla verði afnum­in. Þetta er meðal þess sem kemur fram í lands­fund­ar­á­lykt­unum flokks­ins. 

Í fjöl­miðla­hluta álykt­un­ar­innar segir enn fremur að óheim­ilt eigi að vera að veita fé af fjár­lögum rík­is­ins til rekst­urs RÚV. „Rás 1 verði verði rekin sem öryggis og menn­ing­ar­stöð og tryggt verði að útsend­ingar nái til allra lands­manna, lands­ins alls og land­helgi. Stöðin verði rekin fyrir fé frá Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti og á ábyrgð ráð­herra. Stofn­aður verði sér­stakur sam­keppn­is­sjóður er hafi það hlut­verk að fjár­magna inn­lenda fram­leiðslu fræðslu, menn­ing­ar- og skemmti­efnis fyrir fjöl­miðla (út­varp, sjón­varp og dag­blöð) Sjóð­ur­inn fái á ári að lág­marki sama fjár­magn og RU­V ohf. hafði til fram­leiðslu og/eða kaupa á inn­lendu dag­skrár­efni árið 2018.“

Vill gefa almenn­ingi hlut í banka og fjölga lög­reglu­mönnum

Flokk­ur­inn vill auk þess að lög­reglu­mönnum verði fjölgað út um allt land, að reglu­verk atvinnu­lífs­ins verði ein­faldað og að lagt verði áherslu á upp­bygg­ingu hug­vits­greina. Mið­flokk­ur­inn vill taf­ar­laust afnema skerð­ingar líf­eyris krónu á móti krónu, setja þak á vexti af nýjum verð­tryggðum lán­um, taka hús­næð­islið­inn út úr neyslu­vísi­töl­unni og heim­ila áfram að nýta sér­eigna­sparnað til að greiða inn á hús­næð­is­lán. 

Auglýsing
Miðflokkurinn leggur sér­staka áherslu á end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins. Í álykt­un­inni segir að ljúka skuli „end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins með það að mark­miði að lækka vexti og laga kerfið að þörfum fólks og fyr­ir­tækja. Bank­arnir verði minnk­aðir með því að greiða úr þeim umfram eigið fé í rík­is­sjóð. Lands­bank­inn verði lát­inn leiða þá vinnu þar sem m.a. verði stofn­aður nýr hag­kvæmur net­banki sem láni til ein­stak­linga og fyr­ir­tækja á bestu kjör­u­m.“

Þá vill flokk­ur­inn að Fjár­mála­eft­ir­litið verði sam­einað Seðla­bank­anum og að almenn­ingi verði færður hlutur í banka í eigu rík­is­ins, en það var helsta kosn­inga­lof­orð Mið­flokks­ins fyrir kosn­ing­arnar 2017.

Birgir og Gunnar Bragi takast á

Einn er í fram­boði til for­manns Mið­flokks­ins, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, stofn­andi og sitj­andi for­maður flokks­ins. Tveir bjóða sig fram til vara­for­manns, Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Suð­ur­kjör­dæm­is, og Gunnar Bragi Sveins­son, þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins. Þau Anna Kol­brún Árna­dóttir þing­maður Norð­aust­ur­kjör­dæm­is­, Jona­s Henn­ing fjár­festir sem skipar þriðja sæti á lista Mið­flokks­ins í Hafn­ar­firði og Sól­veig Bjarney Dan­í­els­dóttir aðstoð­ar­deild­ar­stjóri á LS­H ­sem skipar fjórða sæti á lista Mið­flokks­ins í Reykja­vík bjóða sig fram til emb­ættis 2. vara­for­manns flokks­ins.

Kosn­ing­arnar á lands­þing­inu fara fram í dag.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent