„Formaður nefndarinnar er rúinn trausti og ætti að segja af sér“

Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að Stundin og Píratar séu eins og Baldur og Konni, sem tali einum rómi búktalarans.

ásmundur friðriksson
Auglýsing

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að Hall­dóra Mog­en­sen, þing­maður Pírata og for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþing­is, sé rúin trausti og eigi að segja af sér. 

Þetta kemur fram í Face­book færslu Ásmund­ar, þar sem hann fjallar um mál sem snýr að Ásmundi Ein­ari Daða­syni, félags­mála­ráð­herra og Braga Guð­brands­syni, fyrr­ver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu. 

Halldóra Mogensen formaður velferðarnefndar.

Auglýsing

Ásmundur segir í færsl­unni að hann hafi sent tölvu­póst á nefnd­ina, sem hann á sæti í og er 2. vara­for­maður henn­ar, og sagt að hann gæti ekki setið fund nefnd­ar­inn­ar, sem var í dag, vegna per­sónu­legra erinda erlend­is. „Ég not­aði póst sem for­mað­ur­inn sendi nefnd­inni og svar­aði til baka. Það er skemmst frá því að segja að það leið örskammur tími frá því að ég sendi svarið á nefnd­ina að tölvu­póst­ur­inn frá mér til nefnd­ar­manna birt­ist óbreyttur á vef Stund­ar­inn­ar,“ segir Ásmundur og gagn­rýnir Hall­dór harð­lega fyrir hennar fram­göng­u. 

„Ég gerði mér reyndar ekki grein fyrir því að for­maður vel­ferð­ar­nefnd­ar, Hall­dóra Mog­en­sen hafði bætt þing­flokki Pírata inn í tölvu­póst­send­ingar sem ein­göngu áttu að ber­ast nefnd­inni. Það er auð­vitað grafal­var­legt mál að for­mað­ur­inn sé að blanda þing­flokki Pírata inn í tölvu­póst­send­ingar nefnd­ar­innar sem míg­lekur upp­lýs­ingum úr þing­inu til Stund­ar­innar eins og nú hefur sann­ast. Þarna kom i ljós sem margir hafa talið rök­studdan grun um að Píratar séu í beinu sam­bandi við Stund­ina og ganga erinda mið­ils­ins á Alþingi og fyrir vini og vanda­menn. Í þeirri orra­hríð sem gengur yfir félags­mála­ráð­herra og Braga Guð­brands­son má vart á milli sjá hvor er fljót­ari með frétt­irn­ar, þing­menn Pírata eða Stundin og sam­starfið minnir á þá félaga Baldur og Konna sem töl­uðu einum rómi búk­talar­ans. Nú er verið að óska eftir sér­stökum fundi í vel­ferð­ar­nefnd, bundnum trún­aði um mál­efni sem ræða á við Braga Guð­brandsson. Barna­vernd­ar­mál njóta mestan trún­aðar og það er því óðs manns æði að ætla sér að ræða trún­að­ar­mál í vel­ferð­ar­nefnd á meðan ekki er hægt að halda trúnað á tölvu­pósti milli nefnd­ar­manna án þess að hann birt­ist í Stund­inni. For­maður nefnd­ar­innar er rúin trausti og ætti að segja af sér,“ segir Ásmund­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent