Bein fylgni milli stuðnings hjá ungu fólki og vilja til að lækka kosningaaldur

Þeir flokkar sem komu í veg fyrir að kosningaaldur væri lækkaður í 16 ár njóta mun minna fylgis hjá ungu fólki en heilt yfir. Þeir sem studdu þá breytingu myndu hins vegar græða á því ef einungis fólk undir þrítugu fengi að kjósa.

7DM_0179_raw_1833.JPG kosningar
Auglýsing

Þeir þrír flokkar sem beittu mál­þófi gegn því að kosn­inga­aldur yrði lækk­aður í 16 ár í kom­andi sveita­stjórn­ar­kosn­ingum njóta áber­andi minni stuðn­ings kjós­enda í yngsta ald­urs­hópi kjós­enda en þeim elstu. Flokk­arnir þrír eru Sjálf­stæð­is­flokk­ur, Mið­flokkur og Flokkur fólks­ins.

Komið var í veg fyrir atkvæða­greiðslu um frum­varp sem myndi lækka kosn­inga­aldur í kom­andi sveita­stjórn­ar­kosn­ingum úr 18 árum í 16 ár þann 23. mars síð­ast­lið­inn. Það var gert með mál­þófi þing­manna úr Sjálf­stæð­is­flokki, Mið­flokki og Flokki fólks­ins. Hefði frum­varpið orðið að lögum hefðu um níu þús­und nýir kjós­endur fengið að kjósa. Öruggur meiri­hluti var fyrir mál­inu á Alþingi.

Auglýsing
Í nýrri könnun Félags­vís­inda­stofn­unar sem gerð var fyrir Morg­un­blaðið er fylgi flokka í Reykja­vík meðal ann­ars greint eftir aldri. Þar kom fram að á meðal kjós­enda á aldr­inum 18-29 ára, yngsti ald­urs­hóp­ur­inn sem má kjósa, var fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins 21 pró­sent, fylgi Mið­flokks­ins þrjú pró­sent og fylgi Flokks fólks­ins 2,7 pró­sent. Það er mun minna fylgi en allir þrír flokk­arnir mæl­ast með í heild þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 27,3 pró­sent, Mið­flokk­ur­inn með 7,3 pró­sent og Flokkur fólks­ins með 3,6 pró­sent.

Það er líka fylgni á milli afstöðu flokka til þess að vilja lækka kosn­inga­ald­urs og vin­sælda þeirra í yngsta ald­urs­hópn­um. Sam­fylk­ingin nýtur 34,9 pró­sent fylgis hjá fólki undir þrí­tugu í Reykja­vík sam­kvæmt könnun Félags­vís­inda­stofn­unar en er með 30,5 pró­sent fylgi heilt yfir. Vinstri græn myndu fá 12 pró­sent fylgi ef allir kjós­endur væru yngri en þrí­tugt en eru með 9,7 pró­sent fylgi hjá öllum ald­urs­hóp­um. Píratar mæl­ast með 8,7 pró­sent fylgi hjá yngsta ald­urs­hópnum en 6,8 pró­sent í heild og Við­reisn er með 6,4 pró­sent hjá fólki undir þrí­tugu en 5,3 pró­sent í heild. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er einnig vin­sælli hjá ungu fólk en öðrum ald­urs­hóp­um, 4,1 pró­sent fólks undir þrí­tugu segir að það myndi kjósa Fram­sókn ef kosið yrði í dag en fylgi flokks­ins hjá öllum ald­urs­hópum mælist ein­ungis 2,8 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent