Þorsteinn: Yfirlýsing ráðherra með ólíkindum

Fyrrverandi félagsmálaráðherra segir að ómögulegt sé að meta málin er tengjast fyrrverandi forstjóra Barnaverndarstofu nema með því að birta rannsókn ráðuneytisins.

Þorsteinn-víglundsson-nytt3.jpg
Auglýsing

„Það verður að segj­ast eins og er að þessi yfir­lýs­ing ráð­herra er með ólík­ind­um.“

Þetta segir Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar og fyrr­ver­andi félags­mála­ráð­herra, á Face­book síðu sinni.

Það vitnar hann til yfir­lýs­ingar Ásmundar Ein­ars Daða­son­ar, núver­andi félags­málarað­herra, þess efnis að rann­sókn ráðu­neyt­is­ins, á málum er tengj­ast kvört­unum Barna­verndar Reykja­víkur og Barna­verndar Hafn­ar­fjarð­ar, á afskiptum Braga Guð­brands­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, sé ekki hafin yfir gagn­rýni.

Auglýsing

„Ráðu­neytið fer með eft­ir­lits­skyldu gagn­vart Barna­vernd­ar­stofu og er því hinn rétti aðili til að sinna þess­ari rann­sókn. Rann­sóknin var sett af stað í ráð­herra­tíð minni eftir að form­legar kvart­anir höfðu borist frá Barna­vernd­ar­nefnd Reykja­víkur og Barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarð­ar. Vand­inn er hins vegar sá að nið­ur­staða þeirrar rann­sóknar sem fór fram hefur aldrei verið birt. Það var vænt­an­lega ákvörðun ráð­herra að gera það ekki. Án birt­ingar á nið­ur­stöðu er engin leið að taka afstöðu til rann­sókn­ar­inn­ar. Það er ótrú­legt að ráð­herra kasti með þessum hætti rýrð á vinnu eigin ráðu­neytis án þess að sú nið­ur­staða hafi verið birt,“ segir Þor­steinn.

Enn fremur segir hann, að það sé svo sjálf­stætt mál hvað ráð­herra geri með þá nið­ur­stöðu, með ann­ars að styðja við fram­boð Braga á alþjóða­vett­vangi, en eins og kunn­ugt er þá er Bragi í fram­boði fyrir Íslands hönd til setu í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna. Í henni eiga sæti 18 full­trúar sem hafa það hlut­verk að hafa eft­ir­litið með Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. „Það er engin leið að leggja mat á þá ákvörðun án þess að hafa nið­ur­stöðu ráðu­neyt­is­ins í mál­inu við hend­ina. Það er hins vegar enn og aftur nokkuð sem heyrir undir ábyrgð ráð­herra en ekki ráðu­neyt­is­ins. Það er ekki sér­lega stór­mann­legt af ráð­herra að varpa ábyrgð á eigin gjörðum yfir á emb­ætt­is­menn ráðu­neyt­is­ins með þessum hætt­i,“ segir Þor­steinn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent