Tíu blaðamenn létust í Afganistan

Tvær árásir voru gerðar að blaðamönnum í Afganistan á mánudag. Í árás í Kabúl létust níu en einnig var blaðamaður BBC í Afganistan skotinn til bana sama dag.

blaðamaður
Auglýsing

Tíu blaða­menn voru á meðal þeirra 31 sem lét­ust af völdum sjálfs­morð­sprengju árása í Kabúl í Afganistan á mánu­dag. Fyrsta sprengjan sprakk um klukkan átta að afgönskum tíma og þegar ljós­mynd­ar­ar, blaða­menn og aðrir flykkt­ust að svæð­inu sprengdi annar maður sig upp í kjöl­far­ið. Seinni árás­armað­ur­inn hafði dul­búið sig sem ljós­mynd­ara til að kom­ast inn á svæð­ið.  

­Spreng­ing­arnar áttu sér stað í hverf­inu Shas­hdarak en banda­ríska sendi­ráðið og skrif­stofur afganskra yfir­valda eru stað­settar þar. Ljós­mynd­ari AFP frétta­stof­unn­ar, Shah Marai var einn af þeim sem lést í sprengju­til­ræð­inu en hryðju­verka­sam­tökin ISIS hafa lýst voða­verk­unum á hendur sér.

Auglýsing


Önnur árás á blaða­mann í Afganistan átti sér stað á mánu­dag en þá var blaða­mað­ur­inn Ahmad Shah skot­inn til bana í Khost hér­að­inu. Shah var 29 ára og vann hjá BBC í Afganist­an. Ekki er vitað hverjir réðu Shah bana, en ISIS hafa ekki lýst morð­inu á hendur sér. 

Afganistan er í 118. sæti á lista Reporters Wit­hout Borders (RWB), eða Fjöl­miðlar án landamæra, yfir fjöl­miðla frelsi. Árið 2017 lét­ust í það minnsta 15 blaða­menn og aðstoð­ar­fólk þeirra í skipu­lögðum árásum á blaða­menn þar í landi.



Heimild: Reporters Without BordersÁ síðu Reporters Wit­hout Borders segir að Talí­banar og ISIS-liðar hafi unnið mark­visst að því að skapa fjöl­miðla svart­hol á nokkrum stöðum í land­inu með skipu­lögðum árásum á blaða- og fjöl­miðla­fólk. Einnig hafa Talí­banar lagt háa skatta á fjöl­miðla þar í landi. Afgönsk yfir­völd eiga erfitt með að sam­þykkja sjálf­stæði fjöl­miðla og hafa lög­reglan og her­inn verið við­riðin árásir á blaða­menn. Ástandið hefur haft bein áhrif á konur í blaða­manna­stétt­inni en margar hverjar hafa gef­ist upp vegna hót­ana og árása. 

Sam­kvæmt Reporters Wit­hout Borders hafa fjórtán blaða­menn, fjórir borg­ara blaða­menn (cit­izen journa­lists) og tveir aðstoð­ar­menn blaða­manna verið drepnir það sem af er ári. Með árás­unum á mánu­dag er sú tala upp í 30 í heild­ina. Á árinu 2017 lét­ust 55 blaða­menn, sjö borg­ara blaða­menn og tólf aðstoð­ar­menn blaða­manna. Flestir lét­ust í Afganistan og Sýr­landi, en í Sýr­landi lét­ust þrett­án. 

.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent