Íslenska sprotafyrirtækið Videntifier hefur gert stóran samning við Facebook, en í honum felst að Facebook kaupir afnot af hugbúnaði og tækni sem fyrirtækið hefur þróað undanfarinn áratug.
Videntifer notar tækni sem gerir tölvum kleift að bera kennsl á flókið myndefni, bæði kyrrmyndir og kvikmyndir, óháð framsetningu og breytingum. Interpol er nú stærsti viðskiptavinur fyrirtækisins og flestir viðskiptavinir eru stofnanir sem sinna lögæslu- og eftirlitsstörfum. Hjá þessum aðilum er tæknin notuð til að bera kennsl á ólöglegt myndefni. Tæknin hefur einnig verið notuð til að vernda höfundarrétt.
Tæknin var þróuð af lykilstofnendum fyrirtækisins Herwig Lejsek og Friðriki Ásmundssyni, í samstarfi við Björn Þór Jónsson, dósent við HR og fleiri.
Í tilkynningu er haft eftir Herwig Lejsek framkvæmdastjóra Videntifier að samningurinn sé viðurkenning á þeirri tækni sem fyritækið hafi þróað síðustu 10 ár. „Það hefur alltaf verið markmið okkar að tæknin sé bæði hraðvirk og nákvæm þannig að hún beri rétt kennsl á myndir og geti ráðið við risastór verkefni. Að stærsta fyrirtækið í samfélagsmiðlum nýti hana sýnir að það hefur tekist,“ segir Lejsek.
Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, verið stjórnarformaður fyrirtækisins frá stofnun og segir í tilkynningunni að samningurinn sé meiriháttar áfangi í þróun fyrirtækisins. „Allir þeir sem að því hafa komið eiga heiður skilinn fyrir sitt framlag, sérstaklega starfsmenn. Þetta er líka gott dæmi um hversu mikil tækifæri og verðmæti er hægt að skapa á grunni hugvits hér á Íslandi, en það mun skipta Ísland öllu til framtíðar að hafa mannauð og umhverfi sem skila svona áföngum miklu oftar.“