Facebook kaupir hugbúnað og tækni af íslensku sprotafyrirtæki

Íslenska sprotafyrirtækið Videntifier hefur gert stóran samning við Facebook, en í honum felst að Facebook kaupir afnot af hugbúnaði og tækni sem fyrirtækið hefur þróað undanfarinn áratug.

h_53588326.jpg Mark Zuckerberg Facebook
Auglýsing

Íslenska sprota­fyr­ir­tækið Videntifier hefur gert stóran samn­ing við Face­book, en í honum felst að Face­book kaupir afnot af hug­bún­aði og tækni sem fyr­ir­tækið hefur þróað und­an­far­inn ára­tug.

Videnti­fer notar tækni sem gerir tölvum kleift að bera kennsl á flókið myndefni, bæði kyrr­myndir og kvik­mynd­ir, óháð fram­setn­ingu og breyt­ing­um. Inter­pol er nú stærsti við­skipta­vinur fyr­ir­tæk­is­ins og flestir við­skipta­vinir eru stofn­anir sem sinna lög­æslu- og eft­ir­lits­störf­um. Hjá þessum aðilum er tæknin notuð til að bera kennsl á ólög­legt myndefni. Tæknin hefur einnig verið notuð til að vernda höf­und­ar­rétt.

Tæknin var þróuð af lyk­il­stofn­endum fyr­ir­tæk­is­ins Herwig Lej­sek og Frið­riki Ásmunds­syni, í sam­starfi við Björn Þór Jóns­son, dós­ent við HR og fleiri.

Auglýsing

Í til­kynn­ingu er haft eftir Herwig Lej­sek fram­kvæmda­stjóra Videntifier að samn­ing­ur­inn sé við­ur­kenn­ing á þeirri tækni sem fyri­tækið hafi þróað síð­ustu 10 ár. „Það hefur alltaf verið mark­mið okkar að tæknin sé bæði hrað­virk og nákvæm þannig að hún beri rétt kennsl á myndir og geti ráðið við risa­stór verk­efni. Að stærsta fyr­ir­tækið í sam­fé­lags­miðlum nýti hana sýnir að það hefur tekist,“ segir Lej­sek.

Ari Krist­inn Jóns­son, rektor Háskól­ans í Reykja­vík, verið stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins frá stofnun og segir í til­kynn­ing­unni að samn­ing­ur­inn sé meiri­háttar áfangi í þróun fyr­ir­tæk­is­ins. „Allir þeir sem að því hafa komið eiga heiður skil­inn fyrir sitt fram­lag, sér­stak­lega starfs­menn. Þetta er líka gott dæmi um hversu mikil tæki­færi og verð­mæti er hægt að skapa á grunni hug­vits hér á Íslandi, en það mun skipta Ísland öllu til fram­tíðar að hafa mannauð og umhverfi sem skila svona áföngum miklu oft­ar.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent