Stjórnvöld ættu að hækka álögur á gosdrykki þannig að þeir séu skattlagðir í samræmi við almenna skattheimtu í landinu, þ.e. beri 24 prósent virðisaukaskatt í stað 11 prósents, samkvæmt tillögum Embættis landklæknis um breyta álögum á tiltekin matvæli til að bæta neysluvenjur landsmanna sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti fyrir ríkisstjórninni í morgun.
Þetta kemur fram í frétt velferðarráðuneytisins í dag.
Enn fremur er lagt til að lögð séu vörugjöld á gosdrykki þannig að hækkunin á þeim nemi í heildina a.m.k. 20 prósent sem sé þá í samræmi við það sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin ráðleggur aðildarríkjum. Fjármunir sem koma inn séu síðan nýttir til að lækka álögur á grænmeti og ávexti.
Segir í fréttinni að tillögurnar séu í samræmi við ráðleggingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um aðgerðir til að efla lýðheilsu og draga úr heilsufarslegum ójöfnuði.
Svandís segir mikilvægt að stjórnvöld fjalli um tillögur Embættis landlæknis, enda sé það lagt til í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að kostir þess að beita efnahagslegum hvötum til að efla lýðheilsu verði skoðaðir.
Mikill ávinningur af skattlagningu sykraðra drykkja
Í minnisblaði embættisins til heilbrigðisráðherra þessa efnis er áhersla lögð á að lýðheilsusjónarmið verði höfð til hliðsjónar við beitingu efnahagslegra hvata þannig að þeir virki sem forvarnaraðgerð og verði til þess að bæta heilsu landsmanna.
Bent er á að sykurneysla sé mjög mikil hér á landi, hún sé yfir ráðlagðri hámarksneyslu meðal ungs fólks og barna og í samanburði við hinar Norðurlandaþjóðirnar sé neysla á sykruðum gosdrykkjum og sykurríkum vörum mest hér á landi. Þessar neysluvenjur auki líkur á offitu og tannskemmdum og geti aukið líkur á sykursýki af tegund tvö.
Embætti landlæknis segir að vísindalegur grundvöllur þess að beita vel skipulagðri skattlagningu á matvæli ásamt fleiri aðgerðum til að bæta neysluvenjur sé að styrkjast og sé hvað sterkastur þegar mat er lagt á heilsufarslegan ávinning af skattlagningu sykraðra drykkja.