Grunnlaun markaðsstjóra hækkuðu mest árið 2017 eða um 14,8 prósent og heildarlaun um 12,2 prósent. Þar á eftir hækkuðu grunnlaun aðalbókara næst mest eða um 10,2 prósent. Þetta kemur fram í nýrri launakönnun VR.
Heildarlaun félagsmanna VR voru um 668 þúsund krónur á mánuði að meðaltali í janúar á þessu ári og hækkuðu um 6,1 prósent frá janúar 2017 en þá voru þau um 630 þúsund, samkvæmt könnuninni. Grunnlaun voru um 622 þúsund og hækkuðu um 5,9 prósent frá janúar 2017 þegar þau voru 588 þúsund. Launavísitala VR, sem mælir breytingar á launum félagsmanna yfir lágmarkslaunum, hækkaði um 6,25 prósent á sama tímabili en kjarasamningsbundnar launahækkanir voru 4,5 prósent frá 1. maí 2017.
Grunnlaun kerfisfræðinga með háskólapróf hækkuðu minnst og í reynd lækkuðu þau um 1,6 prósent. Heildarlaun þeirra hækkuðu þó um 3,8 prósent. Grunnlaun sölustjóra hækkuðu minnst þar á eftir eða um 1,3 prósent og sérhæfðra ritara um 1,5 prósent. Grunnlaun fólks sem starfar við gestamóttöku hækkuðu um 2,3 prósent en heildarlaunin aftur á móti um 13,8 prósent.
Hægt er að skoða breytingar á meðaltali grunnlauna og heildarlauna milli áranna 2017 og 2018 hér.
Launamunur kynjanna óbreyttur
Munur á heildarlaunum karla og kvenna er nú 13,4 prósent, samkvæmt könnuninni, en kynbundinn munur, þegar búið er að taka tillit til helstu áhrifaþátta á laun, er 10 prósent samanborið við 11,3 prósent í fyrra. Breyting milli ára er ekki marktæk, segir í frétt VR um málið, og þarf að fara aftur til ársins 2001 til að sjá marktæka breytingu, að þeirra mati.
Félagsmenn VR vinna að meðaltali 42,9 stundir á viku hverri og er þetta í fyrsta skipti sem vinnuvikan er styttri en 43 stundir í launakönnun félagsins. Lengst var hún um 45 stundir að meðaltali á árunum fyrir hrun, segir í fréttinni.