Kaupþing og íslensk stjórnvöld hafa gengið frá samkomulagi um að ríkið falli frá forkaupsrétti sínum að hlutabréfum Kaupþings í Arion banka upp að ákveðnum eignarhluta og í tiltekinn tíma þegar ráðist verður í hlutafjárútboð og skráningu bankans.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Samkomulag um endurskoðun á umræddum forkaupsrétti náðist um síðustu helgi, að því er fram kemur í Fréttablaðinu, en slíkt samkomulag hefur verið talið nauðsynlegt til að láta útboðið ganga upp.
Forkaupsrétturinn myndi virkjast ef hlutabréf Kaupþings í Arion banka eru seld á genginu 0,8 eða lægra miðað við eigið fé.
„Um leið myndi hann þá aftra því að raunverulegt markaðsverð á bankanum yrði leitt fram. Ríkið verður hins vegar áfram með forkaupsrétt að þeim hluta sem ekki selst í útboðinu og verður enn í eigu Kaupþings eftir skráningu bankans á markað. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins náðist þó ekki samkomulag um að Kaupþingi verði gert að greiða ríkinu mismuninn ef sölugengið í útboðinu á þeim bréfum sem ríkið mun falla frá forkaupsrétti sínum að verður lægra en 0,8. Fulltrúar stjórnvalda og Kaupþings hafa undanfarnar vikur rætt um að eignarhaldsfélagið myndi ábyrgjast slíka greiðslu en ekki náðist sátt um það,“ segir í umfjöllun Fréttablaðsins.
Eins og áður hefur verið greint frá, þá hefur ríkið selt 13 prósent hlut sinn í Arion banka fyrir rúmlega 23 milljarða króna.