Tillögur um ríkisstuðning við fréttafjölmiðla lögð fyrir ráðherra í júní

Unnið er að söfnun gagna og því að leggja mat á tillögur til að styrkja rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla á Íslandi. Tillögurnar verða lagðar fyrir ráðherra í byrjun næsta mánaðar.

Björgvin Guðmundsson, formaður nefndar um rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla, afhendir Lilju Dögg Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, skýrslu nefndarinnar í lok janúar. Hún fær útfærðar tillögur um aðgerðir inn á borð til sín á næstunni.
Björgvin Guðmundsson, formaður nefndar um rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla, afhendir Lilju Dögg Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, skýrslu nefndarinnar í lok janúar. Hún fær útfærðar tillögur um aðgerðir inn á borð til sín á næstunni.
Auglýsing

Hug­myndir um hvernig styrkja eigi rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla verða lagðar fyrir Lilju Alfreðs­dótt­ur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, í byrjun júní. Á meðal þeirra til­lagna sem eru til umfjöll­unar eru til­lögur varð­andi greiðslur vegna tal­setn­ingar og text­unar og til­lögur til að fjár­magna starf­semi rit­stjórna sem vinna frétta­tengt efni. Þetta kom fram í máli Elfu Ýrar Gylfa­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóra fjöl­miðla­nefnd­ar, á opnum fundi sem Vinstri græn í Reykja­vík héldu í gær undir yfir­skrift­inni „Að­för að lýð­ræði, fals­fréttir og kosn­ing­ar“.

Þann 26. apríl síð­ast­lið­inn var til­kynnt um að Gylfi Ólafs­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefði verið ráð­inn í tíma­bundið starf verk­efna­stjóra hjá fjöl­miðla­nefnd. Sam­kvæmt frétt á vef nefnd­ar­innar er Gylfa ætlað að „afla gagna og leggja mat á til­lögur nefndar um bætt rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla, sem birtar voru í jan­úar sl. Byggt verður á afrakstri þeirrar vinnu við und­ir­bún­ing að ákvörð­un­ar­töku stjórn­valda um hvernig hægt er að styrkja rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla. Meðal ann­ars verður byggt á mik­il­vægum upp­lýs­ingum í skýrslum fjöl­miðla sem þeir afhenda fjöl­miðla­nefnd árlega, sam­kvæmt lögum um fjöl­miðla. Gert er ráð fyrir að fyrstu hug­myndir liggi fyrir í byrjun sum­ars en það veltur á því hversu vel mun ganga að afla nauð­syn­legra upp­lýs­inga frá fjöl­miðl­unum sjálf­um.“

Í dag, föstu­dag­inn 11. maí, rennur út frestur skráðra fjöl­miðla á Íslandi til að skila inn árlegri skýrslu til fjöl­miðla­nefnd­ar. Í þetta sinn er óskað eftir við­bót­ar­upp­lýs­ingum um hver kostn­aður fjöl­miðla sé við fram­leiðslu frétta og frétta­tengds efn­is. Til­gangur þess að afla þeirra gagna er sá að áreið­an­legar upp­lýs­ingar liggi fyrir um stöðu fjöl­miðla þegar stjórn­völd taka ákvörðun um hvort og þá hvernig ráð­ist yrði í end­ur­greiðslur vegna fram­leiðslu á fréttum og frétta­tengdu efni.

Auglýsing

Nefndin skil­aði sjö til­lögum

Nefnd um rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla, sem Ill­ugi Gunn­ars­son skip­aði í lok árs 2016, skil­aði skýrslu með til­lögum um umbætur í lok jan­úar síð­ast­liðn­um. Nefndin gerði til­­lögur um aðgerðir í sjö liðum sem gætu bætt rekstr­­ar­skil­yrði fjöl­miðla.

Þær snéri meðal ann­­ars að stöðu Rík­­is­út­­varps­ins á aug­lýs­inga­­mark­aði, skatta­­legu umhverfi, textun og tal­­setn­ingu og end­­ur­greiðslu fram­­leiðslu­­kostn­aðar á fréttum og frétta­tengdu efni. Þá var einnig ítar­­leg sam­an­­tekt um opin­beran stuðn­­ing við fjöl­miðla í helstu nágranna­­ríkjum auk sér­­á­lits tveggja nefnd­­ar­­manna.

Í nefnd­inni sátu Björg­vin Guð­­munds­­son, for­­mað­­ur, með­­eig­andi KOM ráð­gjaf­­ar, Elfa Ýr Gylfa­dótt­ir, fram­­kvæmda­­stjóri fjöl­miðla­­nefnd­­ar, Hlynur Inga­­son, starfs­­maður í fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­i, Soffía Har­alds­dótt­ir, fyrr­ver­andi fram­­kvæmda­­stjóri mbl.is, og Svan­­björn Thorodd­sen, með­­eig­andi KPMG.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent