Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 4,25 prósent.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum.
Í henni segir að samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans sem birt er í maíhefti Peningamála séu horfur á að hagvöxtur verði aðeins minni í ár en í fyrra. Fari þar saman hægari vöxtur útflutnings og minni vöxtur innlendrar eftirspurnar. Þetta sé áþekkur hagvöxtur og gert hafi verið ráð fyrir í febrúarspá bankans og líkt og þá sé talið að hann minnki frekar á næstu tveimur árum.
„Verðbólga var 2,5% á fyrsta fjórðungi ársins og 2,3% í apríl. Undirliggjandi verðbólga er á svipuðu róli. Verðbólga hefur því í stórum dráttum verið í samræmi við 2½% verðbólgumarkmið Seðlabankans síðustu mánuði. Áfram hefur dregið úr árshækkun húsnæðisverðs en gagnstæð áhrif gengisbreytinga krónunnar á verðbólguna hafa dvínað. Líklegt er að þessi þróun haldi áfram á næstunni. Gengi krónunnar er nær óbreytt frá síðasta fundi peningastefnunefndar og gjaldeyrismarkaðurinn hefur áfram verið í ágætu jafnvægi. Hvorki verðbólguhorfur né verðbólguvæntingar hafa breyst að neinu marki frá síðasta fundi nefndarinnar.“
Samkvæmt Seðlabankanum eru horfur á minnkandi spennu í þjóðarbúskapnum. „Eigi að síður er áfram þörf fyrir peningalegt aðhald til að halda aftur af örum vexti innlendrar eftirspurnar. Dregið hefur úr hættu á ósjálfbærum launahækkunum til skamms tíma litið en undirliggjandi spenna á vinnumarkaði er enn til staðar,“ segir í tilkynningunni