Forkaupsréttur ríkisins gildir ekki við frumskráningu Arion á markað

Íslenska ríkið hefur samið um að forkaupsréttur þess muni ekki gilda við frumskráningu Arion banka á markað. Það verður því hægt að kaupa hluti í Arion banka á verði sem er undir 0,8 krónur af bókfærðu virði bankans.

Arion banki
Auglýsing

Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og Kaup­þing hafa náð saman um að for­kaups­réttur rík­is­ins á hlutum í bank­anum verði „að­lag­að­ur“ á þann hátt að hann muni ekki gilda við frum­skrán­ingu Arion banka á skipu­legan verð­bréfa­markað og sölu á hlutum Kaup­þings/­Kaup­skila sem fyr­ir­huguð er í tengslum við skrán­ing­una. 

­For­kaups­rétt­ur­inn muni hins vegar að öðru leyti standa óhagg­aður eftir það. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá íslenska rík­inu.

For­kaups­réttur íslenska rík­is­ins var tryggður í stöð­ug­leika­samn­ingi við kröfu­hafa Arion banka. Sam­kvæmt honum virkj­ast réttur rík­is­ins til að ganga inn í við­skipti með hluti í Arion banka ef verðið í þeim við­skiptum fer niður fyrir 0,8 krónur á hverja krónu af bók­færðu eigin fé Arion banka.

Aðlög­unin felur því í sér að hægt verði að selja hluti í Arion banka á lægra verði en því í útboð­inu sem greint var frá í morgun að muni fara fram fyrir júní­lok. 

Í frétta­til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu segir að áskilið sé að núver­andi hlut­hafar í Arion banka, sem einnig eru hlut­hafar í Kaup­þingi, stærsta eig­anda Arion banka, muni ekki auka við hlut sinn við frum­skrán­ing­una.

Auglýsing
Söluandvirði þeirra hluta­bréfa sem seld verða í tengslum við skrán­ing­una munu renna inn á skulda­bréf sem Kaup­þing gaf út í tengslum við gerð stöð­ug­leika­samn­ing­anna. Eft­ir­stöðvar þess eru nú 29 millj­arðar króna.

Í til­kynn­ing­unni seg­ir: „Ríkið mun fylgj­ast grannt með skrán­ing­ar- og sölu­ferl­inu og mun til­nefna eft­ir­lits­að­ila sem mun fylgj­ast með og hafa aðgang að öllum upp­lýs­ingum og gögnum sem varða ferl­ið.“

Kjarn­inn mun fjalla ítar­lega um málið í frétta­skýr­ingu síðar í dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent