Þann 11. maí sl., fóru Gylfi Sigfússon forstjóri og Bragi Þór Marinósson framkvæmdastjóri alþjóðasviðs Eimskips til skýrslutöku hjá embætti héraðssaksóknara og fengu báðir stöðu sakbornings þann sama dag.
Þetta kemur fram í tilkynningu Eimskips til kauphallar Íslands.
Þann 10. september 2013 framkvæmdi Samkeppniseftirlitið húsleit á starfsstöðvum Samskipa og Eimskips. Húsleitin var gerð vegna rannsóknar á meintum brotum gegn 10. og 11. gr. samkeppnislaga.
Frá því að húsleitin var gerð hefur Eimskip ítrekað óskað eftir upplýsingum um grundvöll málsins, með „takmörkuðum árangri“ af því er segir í tilkynningu. Félagið hefur sent frá sér fjölda fréttatilkynninga um málið. Ítarleg fréttatilkynning var birt þann 23. október 2014 í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar.
„Eins og áður hefur félagið takmarkaðar upplýsingar um grundvöll stjórnsýslumálsins sem varðar ætluð brot gegn 10. gr. og 11. gr. samkeppnislaga, en rannsókn héraðssaksóknara varðar 10. gr. samkeppnislaga og miðar að því hvort ólögmætt samráð um verð eða skiptingu markaða hafi átt sér stað. Framangreindir starfsmenn hafa óskað eftir afriti gagna sem ekki hefur borist. Félagið sjálft hefur ekki fengið gögn í hendur um málið,“ segir í tilkynningunni.
Enn fremur segir að það sé von félagsins að rannsókninni fari senn að ljúka.
„Miðað við þær takmörkuðu upplýsingar sem félaginu eru kunnar um sakarefni málsins, hafnar félagið sem fyrr ásökunum um að hafa gerst brotlegt gegn ákvæðum samkeppnislaga. Það er von félagsins að rannsókninni fari senn að ljúka og fagnar því, nú næstum fimm árum síðar, að loksins virðist sem skriður sé kominn á rannsókn málsins,“ segir í tilkynningunni.