Þórdís Lóa: Getum starfað með öllum hér

Oddviti Viðreisnar segir að flokkurinn hafi gengið óbundinn til kosninga og útilokar hún ekki samstarf með neinum flokki.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík.
Auglýsing

Þór­dís Lóa Þór­halls­dótt­ir, odd­viti Við­reisnar í Reykja­vík, segir að flokk­ur­inn hafi gengið óbund­inn til kosn­inga. „Við höfum sagt að við getum starfað með öllum hér,“ segir hún. Þetta kom fram í Silfr­inu í dag en þar ræddu Egill Helga­son og Fanney Birna Jóns­dóttir við odd­vita flokk­anna sem hlutu kosn­ingu í Reykja­vík í gær.

Þór­dís Lóa telur að borg­ar­búar séu að kalla eftir breyt­ingum og að nú séu komnir inn nýir flokkar sem byrja á núlli, öfugt við það sem verið hef­ur. Hún og Pawel Bar­toszek eru borg­­ar­­full­­trúar Við­reisn­­ar en flokk­ur­inn fékk 8,16 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í gær.

Eyþór Lax­dal Arn­alds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að nið­ur­staðan sé skýr og að eðli­legt sé að horft sé á hana þegar ræða skal meiri­hluta­sam­starf. Hann segir enn fremur að nýjar raddir séu komnar í stjórn­málum í borg­inni sem þurfi að heyr­ast. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 30,77 pró­sent atkvæða og er því stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík. 

Auglýsing

Vig­dís Hauks­dótt­ir, odd­viti Mið­flokks­ins í borg­inni, telur að stærsti flokk­ur­inn eigi að leiða við­ræð­urnar og vísar þar með til Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hún telur að Dagur B. Egg­erts­son, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, muni ekki fórna borg­ar­stjórn­ar­stólnum og sé Við­reisn í lyk­il­stöðu til að mynda meiri­hluta með þeim og Flokki fólks­ins. Hún telur þann meiri­hluta vera mál­efna­leg­an.

Sanna Magda­­lena Mört­u­dótt­ir og Sós­í­alista­flokk­ur­inn fengu góða kosn­ingu í gær en þau hlutu 6,37 pró­sent atkvæða. Þetta er í fyrsta skiptið sem flokk­ur­inn býður fram og segir Sanna að þetta sé allt nýtt fyrir þau og komi þau að borð­inu með sína per­sónu­legu reynslu. Hún segir að of snemmt sé að segja til um með hvaða flokki þau vilji vinna en að þau leggi áherslu á að koma vald­inu til fólks­ins og að mik­il­vægt sé að það hafi meira að segja um líf sitt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent