Friðrik Már metinn hæfur eftir kvörtun frá umsækjanda

Einn umsækjenda um stöðu aðstoðarseðlabankastjóra sendi inn kvörtun vegna formanns nefndar sem metur hæfi umsækjenda um starf aðstoðarseðlabankastjóra.

Friðrik Már Baldursson
Auglýsing

Frið­rik Bald­urs­son, pró­fessor í hag­fræði og for­maður nefndar sem metur hæfi umsækj­enda um stöðu aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra, var að mati for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og hinna sem í nefnd­inni áttu sæti, hæfur til þess að vera for­maður nefnd­ar­inn­ar, en sér­stök skoðun fór fram á stöðu hans eftir kvörtun frá einum umsækj­anda.

Þetta stað­festi Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, í sam­tali við Kjarn­ann, en hún vildi að öðru leyti ekki tjá sig um hvaða umsækj­andi það hefði ver­ið, sem hefði lagt fram kvörtun yfir meintu van­hæfi, eða hver aðfinnslu­at­riðin hefðu ver­ið.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans snéru þau að störfum Frið­riks Más fyrir GAMMA, en hann var um tíma ráð­gjafi fyr­ir­tæk­is­ins. 

Auglýsing

Var meðal ann­ars byggt á van­hæf­is­á­stæðum stjórn­sýslu­laga. Sam­kvæmt 3. grein stjórn­sýslu­laga, þar sem fjallað er um van­hæf­is­á­stæð­ur, geta menn talist van­hæfir ef þeir eiga sjálfir sér­stakra eða veru­legra hags­muna að gæta, vensla­menn við­kom­andi eða sjálfs­eign­ar­stofnun eða fyr­ir­tæki í einka­eigu sem þeir eru í for­svari fyr­ir.

Var meðal ann­ars horft til þess að GAMMA geti meðal ann­ars haft hags­muni að ýmsu sem snýr að ákvörð­unum Seðla­bank­ans um fram­kvæmd pen­inga­stefnu og eftir atvikum önnur atriði, sem hafa áhrif á fjár­mála­mark­aði.

Aðrir í nefnd­inni eru Eyjólfur Guð­­munds­­son, rektor Háskól­ans á Akur­eyri, til­­­nefndur af sam­­starfs­­nefnd háskóla­­stigs­ins, og Þór­unn Guð­­munds­dótt­ir, hæsta­rétt­­ar­lög­­mað­­ur, til­­­nefnd af banka­ráði Seðla­­banka Íslands. Þau töldu Frið­rik Má hæf­an, og það sama átti við um lög­fræð­inga for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Í yfir­lýs­ingu frá þremur for­ystu­mönnum í verka­lýðs­hreyf­ing­unni, Aðal­steini Árna Bald­urs­syni, for­manni Fram­sýn­ar, Ragn­ari Þór Ing­ólfs­syni, for­manni VR, og Vil­hjálmi Birg­is­syni, for­manni Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness, er fjallað um stöðu Frið­riks Más í fyrr­nefndri nefnd. Er hann í yfir­lýs­ing­unni sagður van­hæfur til að skipa stjórn­endur Seðla­banka Íslands, en yfir­skrift yfir­lýs­ing­ar­innar er; Hver vill vekja verð­bólgu­draug­inn?. Í yfir­lýs­ing­unni segir orð­rétt: „Öll­um, sem fylgst hafa með efna­hags­mál­um, má ljóst vera að Frið­rik Már Bald­urs­son er ­sam­kvæmt þessu van­hæfur sem for­maður hæf­is­nefnda fyrir lyk­il­stöður Seðla­banka Íslands – þegar litið er til dóma­fram­kvæmdar um van­hæf­is­reglur stjórn­sýslu­rétt­ar. Þær eru náskyld­ar­ hæf­is­reglum rétt­ar­fars, sbr. nú síð­ast dóm Hæsta­réttar 17. maí sl. í máli nr. 752/2017 er tengd­ist einum bank­anna en tengsl hins van­hæfa hér­aðs­dóm­ara við bank­ann voru mun minn­i en tengsl Frið­riks Más við Gamma. Áhrif van­hæfis í slíkum til­vikum eru að stöðu­veit­ing er vænt­an­lega ógild­an­leg. Emb­ætt­is­færslur af því tagi af hendi for­sæt­is­ráð­herra geta ekki ann­að en vakið upp van­traust meðal almenn­ings og minnk­andi trú á sjálf­stæði Seðla­bank­ans,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Emb­ætti aðstoð­­ar­­seðla­­banka­­stjóra var aug­lýst laust til umsóknar þann 21. febr­­úar sl. en skipað er í starfið frá 1. júlí. 

Búast má við því að ráðn­ing­ar­ferl­inu ljúki á næstu vik­um, en það er for­sæt­is­ráð­herra sem skipar í starfið að lok­um.

Arnór Sig­hvats­son er núver­andi aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri, en starfs­tími hans er að renna út lögum sam­kvæmt.

Umsækj­end­­­urnir um starfið eru:

Dan­íel Svav­­­­­ar­s­­­son, hag­fræð­ing­­­ur.

Guð­rún­ John­­­sen, hag­fræð­ing­­­ur.

Stefán Hjalti Garð­­­ar­s­­­son, reikni- og fjár­­­­­mála­verk­fræð­ing­­­ur.

Jón Þ. Sig­­­ur­­­geir­s­­­son, við­­­skipta­fræð­ing­­­ur.

Kon­ráð S. Guð­jóns­­­son, hag­fræð­ing­­­ur.

Ludvik El­í­a­s­­­son, hag­fræð­ing­­­ur.

Ólafur Mar­­­geir­s­­­son, hag­fræð­ing­­­ur.

Rann­veig Sig­­­urð­­­ar­dótt­ir, hag­fræð­ing­­­ur.

Tryggvi Guð­­­munds­­­son, hag­fræð­ing­­­ur.

Vil­hjálmur Bjarna­­­son, við­­­skipta­fræð­ing­­­ur.

Þor­­­steinn Þor­­­geir­s­­­son, hag­fræð­ing­­­ur.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent