Ríkisbankinn að baki fjárfestingum Guðmundar í Brimi

Landsbankinn er stærsti lánveitandi Brims, útgerðarfélags Guðmundar Kristjánssonar í Brimi.

Landsbankinn
Auglýsing

Skuldir Brims við Lands­bank­ann ­nema orðið yfir­ 20 pró­sentum af eig­in­fjár­grunn­i ­bank­ans eftir að ­bank­inn fjár­magn­aði 22 millj­arða króna kaup sjáv­ar­út­vegs­fé­lags­ins á ríf­lega þriðj­ungs­hlut í HB Granda. 

Frá þessu er greint í Mark­aðnum í dag, en skuld­bind­ing Brims gagn­vart Lands­bank­anum er nú yfir 45 millj­arðar króna en eigið fé Lands­bank­ans, sem íslenska ríkið á um 99 pró­sent hlut í, nemur um 225 millj­örðum króna.

Bank­inn er ekki reiðu­bú­inn til þess að lána Brimi fyrir kaup­um á stærri hlut, sam­kvæmt heim­ild­umMark­að­ar­ins, enda gæti þá áhætta hans gagn­vart sjáv­ar­út­vegs­fé­lag­in­u fljótt farið yfir 25 pró­senta leyfi­lega há­markið sem kveðið er á um í reglum Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. 

Auglýsing

Í umfjöll­un­inni segir enn fremur að það sé ekki til þess fallið að auð­velda Brimi að fjár­magna kaup­in, að virði um þriðj­ungs­hlutar félags­ins í Vinnslu­stöð­inni í Vest­manna­eyjum er metið nærri tvölfalt meira í efna­hags­reikn­ingi Brims heldur í nýlegu verð­mati á Vinnslu­stöð­inn­i. 

Fjár­mögn­unin sem bank­inn veitti Brimi fyrir kaupum á rúm­lega 34 pró­sent hlut í HB Granda var tekin fyrir hjá banka­ráði Lands­bank­ans, að sögn Mark­að­ar­ins, en ákveðið var að sam­þykkja hana með ströngum skil­yrðum um veð­setn­ingu eigna.

Skuld­bind­ing Brims gagn­vart Lands­bank­anum er sam­tals yfir 45 millj­arðar króna, eða sem nem­ur ­meira en 20 pró­sentum af 225 millj­arða króna eig­in­fjár­grunn­i ­bank­ans, sem gerir sjáv­ar­út­vegs­fé­lag­ið að einum stærsta skuld­ar­a ­bank­ans

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent