Sósíalistaflokkurinn ætlar ekki að taka þátt í meirihlutasamstarfi

Sósíalistaflokkurinn segir að ekkert muni ávinnast í samningaviðræðum eins borgarfulltrúa við ríkjandi öfl. Þess vegna ætlar flokkurinn ekki að taka þátt í myndun meirihluta heldur að sitja í andstöðu innan borgarstjórnar.

Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalistaflokksins.
Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalistaflokksins.
Auglýsing

Sós­í­alista­flokkur Íslands mun ekki taka þátt í fyr­ir­hug­uðum við­ræðum um meiri­hluta­sam­starf í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Sönnu Magda­lenu Mörtu­dótt­ur, borg­ar­full­trúa flokks­ins, og Dan­íel Erni Arn­ars­syni, vara­borg­ar­full­trúa hans, sem birt var í kvöld.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur verið orð­aður við þátt­töku í tvenns konar meiri­hluta, ann­ars vegar að hann gæti komið í stað Vinstri grænna í meiri­hluta með Við­reisn, Pírötum og Sam­fylk­ingu, og hins vegar að hægt væri að mynda meiri­hluta með Sam­fylk­ingu, Píröt­um, Vinstri grænum og Flokki fólks­ins. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans hefur áhrifa­fólk innan Vinstri grænna reynt að tala fyrir síð­asti kost­inum en við litlar und­ir­tekt­ir.

Auglýsing

Í yfir­lýs­ing­unni segir að ákvörð­unin sé tekin eftir sam­ráð við félaga þeirra í Sós­í­alista­flokkn­um. „Fram­boð sós­í­alista var fram­boð hinna valda­lausu í borg­inni; lág­launa­fólks, inn­flytj­enda, leigj­enda, eft­ir­launa­fólks, öryrkja og ann­arra hópa sem hefur verið haldið frá völd­um. Þessir hópar eru sjaldn­ast ávarp­að­ir, á þá er ekki hlustað og ekki er gengið út frá hags­munum þeirra þegar ákvarð­anir eru tekn­ar. Góður stuðn­ingur við fram­boð sós­í­alista færði þessum hópum einn borg­ar­full­trúa. En einn borg­ar­full­trúi tjóðr­aður niður í meiri­hluta­sam­starf við aðra flokka mun fá litlu áork­að. Einn borg­ar­full­trúi getur ekki breytt kerf­inu innan frá, allra síst ef hans fyrsta verk verður að ganga inn í svo til óbreyttan meiri­hluta um stefnu sem sós­í­alistar gagn­rýndu harð­lega í kosn­inga­bar­átt­unni. En einn borg­ar­full­trúi getur tekið virkan þátt með félögum sínum í að byggja upp sam­stöðu meðal lág­launa­fólks, innflytj­enda, leigj­enda, eft­ir­launa­fólks, öryrkja og ann­arra valda­lausra hópa og verið far­vegur fyrir bar­áttu þeirra inn í borg­ar­stjórn. Þannig borg­ar­full­trúar viljum við vera og þannig borg­ar­full­trúa eru félagar okkar í Sós­í­alista­flokknum að kalla eft­ir; borg­ar­full­trúa sem hverfur ekki strax eftir kosn­ingar inn í bak­her­bergi Ráð­húss­ins heldur starfar áfram að upp­bygg­ingu þeirrar hreyf­ingar sem sendi okkur inn í borg­ar­stjórn. Það er okkar mark­mið að þjóna þess­ari vax­andi hreyf­ingu næstu árin og byggja upp með henni öfl­uga og rót­tæka hags­muna­bar­áttu hinna kúg­uðu og valda­lausu. Það er aðeins með sam­stöðu og styrk fjöld­ans sem við getum breytt sam­fé­lag­inu. Ekk­ert mun ávinn­ast í samn­inga­við­ræðum eins borg­ar­full­trúa við ríkj­andi öfl.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent