Sigríður Víðis nýr aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra

Sigríður Víðis Jónsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra.

Auglýsing
Sigríður Víðis Jónsdóttir
Sigríður Víðis Jónsdóttir

Sig­ríður Víðis Jóns­dóttir hefur verið ráðin aðstoð­ar­maður Guð­mundar Inga Guð­brands­son­ar, umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra. Þetta kemur fram í frétt ráðu­neyt­is­ins.

Sig­ríður mun hefja störf í áföngum í sum­ar, sam­hliða því að klára fæð­ing­ar­or­lof, og koma síðan alfarið til vinnu 1. sept­em­ber næst­kom­andi, sam­kvæmt frétt­inni. Hún verður aðstoð­ar­maður ráð­herrra ásam­t Orra Páli Jóhanns­­syni.

Sig­ríður er fædd og upp­alin á Akra­nesi. Hún er með BA-­próf í heim­speki frá Háskóla Íslands, með mann­fræði sem auka­grein, og meist­ara­próf í þró­un­ar- og átaka­fræðum frá Uni­versity of East Ang­lia í Bret­landi.

Auglýsing

Sig­ríður hefur síð­ast­liðin ár stýrt kynn­ing­ar­málum hjá UNICEF á Íslandi en hún hóf þar störf sem upp­lýs­inga­full­trúi árið 2011.

Á árunum 2000 til 2011 vann Sig­ríður sem blaða­mað­ur, ýmist í lausa­mennsku, í fullu starfi eða með­fram námi. Hún vann frétta­skýr­ing­ar, við­töl, pistla og ferða­sögur víðs vegar frá í heim­inum og skrif­aði einnig verð­launa­bók­ina „Rík­is­fang: Ekk­ert“ um hóp palest­ínskra kvenna og barna sem flúðu Írak og end­uðu á Akra­nesi. Bókin var meðal ann­ars til­nefnd til Íslensku bók­mennta­verð­laun­anna og Fjöru­verð­laun­anna og hlaut verð­laun Hag­þenkis.

Maki Sig­ríðar er Leó Alex­ander Guð­munds­son, líf­fræð­ing­ur, og eiga þau tvö börn sam­an, Hauk 4 ára og Lauf­eyju 8 mán­aða.

Aðstoð­ar­maður þurfti að hætta

Sif Kon­ráðs­dóttir og Orri Páll Jóhanns­­son voru ráðin aðstoð­­ar­­menn Guð­­mundar Inga Guð­brands­­son­­ar, umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra, þann 14. des­em­ber síð­ast­lið­inn en þann 16. febr­úar ákvað ráð­herra að Sif myndi hætta störfum í ráðu­neyt­inu. Hún var aðstoð­­ar­­maður ráð­herra í rúma tvo mán­uð­i.

Kjarn­inn birti við­­tal við Ólöfu Rún Ásgeir­s­dótt­­ur, þol­anda í kyn­­ferð­is­­máli. Þar greindi hún frá því að hún væri ósátt við traust ráð­herr­ans á Sif. Ólöf hafi upp­­lifað það sem sjálf­­­stætt brot þegar Sif, þá rétt­­­ar­­­gæslu­­­maður henn­­­ar, hafi ekki greitt henni miska­bætur sem henni voru dæmdar vegna kyn­­ferð­is­brots­ins. Ólöf þurfti að leita sér aðstoðar ann­­­ars lög­­­­­manns til að inn­­­heimta bæt­­­urnar sem á end­­­anum feng­ust greidd­­­ar. „Mér fannst hún með þessu gera svo lítið úr brot­inu, þetta litla sem við fengum að geta ekki borgað okkur þetta strax. Ef ég myndi stela úr fyr­ir­tæk­inu sem ég er að vinna hjá, en seint og síðar meir borga það til baka, þá fengi ég ekk­ert að halda vinn­unn­i,“ sagði Ólöf í við­tal­in­u.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent