Fyrsta konan stjórnarformaður MS

Elín M. Stefánsdóttir bóndi í Fellshlíð hefur tekið við stjórnarformennsku hjá Mjólkursamsölunni. Egill Sigurðsson fráfarandi stjórnarformaður mun sitja áfram í stjórn, auk þess að sitja í stjórn nýs dótturfélags MS um erlenda starfsemi.

Elín MS
Auglýsing

Elín M. Stef­áns­dóttir bóndi í Fells­hlíð hefur tekið við stjórn­ar­for­mennsku hjá Mjólk­ur­sam­söl­unni og verður jafn­framt fyrsta konan til þess að gegna hlut­verki stjórn­ar­for­manns hjá fyr­ir­tæk­inu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá MS. Elín og eig­in­maður hennar búa að Fells­hlíð í Eyja­fjarð­ar­sveit og hafa verið bændur þar síðan 2002. Þau eiga 4 börn. Elín hefur setið í stjórn Auð­humlu og Mjólk­ur­sam­söl­unnar síð­ast­liðin 6 ár.

Egill Sig­urðs­son, sem verið hefur stjórn­ar­for­maður frá árinu 2008, mun sitja áfram í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins, auk þess að sitja í stjórn nýs dótt­ur­fé­lags MS um erlenda starf­semi. Egill er jafn­framt for­maður stjórnar Auð­humlu. Auk Elín­ar, Ágústs, Egils og Þór­unn­ar, situr Þórólfur Gísla­son í stjórn MS sem full­trúi Kaup­fé­lags Skag­firð­inga og er hann vara­for­mað­ur. Vara­menn í stjórn Mjólk­ur­sam­söl­unnar eftir breyt­ing­una eru Ásvaldur Þor­móðs­son, Björg­vin R. Gunn­ars­son, Jóhanna Hreins­dótt­ir, Laufey Bjarna­dóttir og Sig­ur­jón Rúnar Rafns­son.

Auglýsing

Breyt­ingar urðu nýlega á full­trúum Auð­humlu í stjórn Mjólk­ur­sam­söl­unnar í kjöl­far aðal­fundar Auð­humlu, sem er aðal­eig­andi MS og hefur stjórn MS skipt með sér verk­um. Ágúst Guð­jóns­son og Þór­unn Andr­és­dóttir eru nýir aðal­menn í stjórn, en Þór­unn var áður vara­mað­ur. Þau komu í stað Jóhann­esar Torfa­sonar og Jóhönnu Hreins­dótt­ur, sem tók sæti í vara­stjórn. Þá var Björg­vin R. Gunn­ars­son kos­inn vara­maður í stjórn í stað Sæmundar Jóns Jóns­son­ar.

Haft er eftir Elínu í til­kynn­ing­unni að hún hafi mikla ástríðu fyrir því að land­bún­aður á Íslandi dafni sem best og að rekstur Mjólk­ur­sam­söl­unnar og fram­leiðsla mjólk­ur­vara sé grunn­stoð kúa­bú­skapar á Íslandi. „Ég vil sjá Mjólk­ur­sam­söl­una dafna sem best í fram­tíð­inni. Það eru framundan margar áskor­anir fyrir mjólkur­iðn­að­inn í kringum end­ur­skoðun á búvöru­samn­ing­um, tolla­samn­ing­inn við ESB, auk­inn inn­flutn­ing og fleiri þætti, sem geta haft veru­leg áhrif á fyr­ir­tækið sem er í eigu okkar kúa­bænda.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent