Ellefu sóttu um embætti forstjóra Sjúkratrygginga Íslands sem auglýst var laust til umsóknar 18. maí síðastliðinn.
Eins og greint var frá á vef Kjarnans, þá ákvað Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, að auglýsa starf forstjóra SÍ, laust til umsóknar en Steingrímur Ari Arason hefur gegnt starfinu undanfarinn áratug.
Heilbrigðisráðherra mun skipa í stöðuna frá 1. nóvember 2018 til fimm ára að fenginni tillögu stjórnar Sjúkratrygginga Íslands, líkt og kveðið er á um í lögum um sjúkratryggingar.
Í 7. gr. laganna er kveðið á um skipun forstjóra, verkefni og ábyrgð. Forstjóri skal hafa lokið námi á háskólastigi og búa yfir rekstri af reynslu og stjórnun sem nýtist í starfi. Forstjóri ræður aðra starfsmenn stofnunarinnar og annast daglegan rekstur hennar. Forstjóri ber ábyrgð á því að sjúkratryggingastofnunin starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi stofnunarinnar og á því að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.
Frestur til að sækja um embættið rann út 10. júní. Umsækjendur um embættið eru eftirtaldir:
- Berglind Ólafsdóttir, áfengis- og fíkniefnaráðgjafi
- Guðrún Ingibjörg Gylfadóttir, formaður
- Hrannar Björn Arnarsson, framkvæmdastjóri
- Huld Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri
- Ingunn Björnsdóttir, dósent
- María Heimisdóttir, framkvæmdastjóri
- Ragnar Magnús Gunnarsson, sviðsstjóri
- Sigríður Haraldsdóttir, sviðsstjóri
- Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, dósent
- Þorvaldur Ingi Jónsson, þróunarstjóri
- Þröstur Óskarsson, deildarstjóri