Stýrivextir verða áfram 4,25 prósent samkvæmt ákvörðun Peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands sem kynnt var í morgun.
Í tilkynningu vegna þessa segir að samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum þjóðhagsreikninga sem Hagstofa Íslands birti nýlega var hagvöxtur á fyrsta fjórðungi ársins 6,6 prósent, sem er töluvert meiri vöxtur en mældist á seinni hluta síðasta árs. „Þetta er aðeins meiri vöxtur en Seðlabankinn gerði ráð fyrir í maí en í meginatriðum er þróunin í samræmi við spá bankans. Áfram eru því horfur á að dragi úr hagvexti á árinu með hægari vexti útflutnings og innlendrar eftirspurnar. Þróun íbúðaverðs og vísbendingar af vinnumarkaði benda í sömu átt.“
Verðbólga hjaðnaði í tvö prósent í maí en hún hafði verið töluvert nær 2,5 prósent verðbólgumarkmiði Seðlabankans mánuðina á undan. „ Áfram dregur úr árshækkun húsnæðisverðs en gagnstæð áhrif gengisbreytinga krónunnar á verðbólguna hafa dvínað. Líklegt er að þessi þróun haldi áfram á næstunni. Gengi krónunnar hefur lækkað aðeins frá síðasta fundi peningastefnunefndar en gjaldeyrismarkaðurinn hefur áfram verið í ágætu jafnvægi. Verðbólguvæntingar virðast á heildina litið í ágætu samræmi við verðbólgumarkmið bankans.“
Peningastefnunefndin segir einnig að horfur séu á minnkandi spennu í þjóðarbúskapnum. „Eigi að síður er áfram þörf fyrir peningalegt aðhald í ljósi mikils vaxtar innlendrar eftirspurnar og undirliggjandi spennu á vinnumarkaði.“