Óskað eftir fundi í utanríkismálanefnd vegna stefnu Trumps

Stefna stjórnvalda er skýr, segir utanríkisráðherra. Hagsmunir barna eiga að vera í fyrirrúmi.

7DM_5056_raw_1951.JPG
Auglýsing

Óskað hefur verið eftir fundi í utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis vegna þeirra aðgerða sem banda­rísk stjórn­völd hafa gripið til, á landa­mærum Banda­ríkj­anna og Mexíkó, þar sem börn hafa verið skilin frá for­eldrum sínum á meðan réttað er í máli for­eldra þeirra. Börnin eru geymd í þar til gerðum búrum, í mörgum til­vik­um.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, segir í við­tali við Frétta­blaðið í dag að afstaða stjórn­valda á Íslandi sé skýr. Hags­munir og rétt­indi barna eigi ávallt að vera í fyr­ir­rúmi. „Miðað við þær fréttir sem ég hef ­séð þá sam­ræm­ist þetta ekki þeim ­gildum sem við aðhyll­umst um að rétt­indi barna séu ávallt í fyr­ir­rúmi. Við erum ekki ein um þá skoð­un. Til að mynda hafa allar núlif­andi for­seta­frúr Banda­ríkj­anna ­gagn­rýnt þetta,“ segir Guð­laugur Þór í við­tali við Frétta­blað­ið.

Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir, þing­mað­ur­ Vinstri grænna og vara­for­mað­ur­ ut­an­rík­is­mála­nefnd­ar, segir í við­tali við Frétta­blaðið að fram­koman við börn sé fyrir neðan allar hell­ur. „Þetta er ómann­úð­leg fram­kom­a og van­virð­ing við börn, mann­rétt­ind­i þeirra og fjöl­skyldur í afar við­kvæmri ­stöðu. Að mínu mati verða ­banda­rísk stjórn­völd að snúa strax af þess­ari leið að nota sak­laus börn sem ­skipti­mynt í umræðum um bygg­ing­u landamæra­veggs,“ segir Rósa.

Auglýsing

Mikil og hörð umræða á sér staða í Banda­ríkj­unum þessi miss­er­in, vegna stefnum rík­is­stjórnar Trumps og dóms­mála­ráð­herr­ans Jeff Sessions, Repúblik­ana frá Ala­bama. Hann hefur meðal ann­ars vitnað til bibl­í­unnar þegar er verið að rétt­læta aðskilnað barna frá for­eldrum sín­um.

Sam­tök sál­fræð­inga og geð­lækna í Banda­ríkj­unum (APA) hafa mót­mælt þess­ari stefnu harð­lega, og hafa bent á í yfir­lýs­ingum að áhrifin af aðskiln­aði við aðstæður sem þess­ar, geti verið var­an­lega nei­kvæð og hættu­leg heilsu barna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent