Vill meiri tekjur af hverjum gesti

Forstjóri Bláa lónsins gerir ekki ráð fyrir að gestum muni fjölga mikið en býst við að ná meiri tekjum af hverjum gesti fyrirtækisins.

Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins
Auglýsing

Grímur Sæmund­sen for­stjóri Bláa lóns­ins gerir ráð fyrir að ná meiri tekjum af hverjum við­skipta­vini þrátt fyrir að fjöldi gesta fyr­ir­tæk­is­ins muni að öllum lík­ind­um. Þetta muni fyr­ir­tækið gera með auknu vöru-og þjón­ustu­fram­boði, sam­kvæmt við­tali Gríms við vef­síð­una túrist­i.is.

Í við­tal­inu er greint frá vin­sældum Bláa lóns­ins meðal erlendra ferða­manna, en í fyrra tóku starfs­menn lóns­ins á móti 1,3 millj­ónum gesta, á meðan 2,2 millj­ónir erlendra far­þega flugu frá Kefla­víkuflug­velli. Aðgangs­tekjur Bláa lóns­ins hafa einnig auk­ist gíf­ur­lega með­fram fjölgun ferða­manna á und­an­förnum árum, eða úr rúmum tveimur millj­örðum króna árið 2012 upp í rúma sjö millj­arða króna í fyrra. 

Sam­kvæmt Túrista hefur fjöldi ferða­manna hins vegar staðið í stað það sem af er þessu ári og spár geri ráð fyrir litlum vexti í ár. Sam­kvæmt Grími hefur hins vegar verið mark­visst unnið að því að hækka tekjur af hverjum gesti frekar en að fjölga þeim.  Það verði m.a. gert með því að tvinna saman ólíka þjón­ustu­þætti, vörur og upp­lifun gesta, auk fjöl­breytt­ara fram­boðs á vörum og þjón­ustu. Þessu til stuðn­ings bendir hann á nýstofnað fyr­ir­tæki í þeirra eigu sem býður upp á áætl­un­ar­ferðir í Bláa lón­ið. 

Auglýsing

Kjarn­inn fjall­aði nýlega um síð­ustu árs­skýrslu Bláa lóns­ins, en sam­kvæmt henni jókst hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins um þriðj­ung milli ára. Hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins eftir skatta nam 31 milljón evra árið 2017, sam­an­borið við 12,8 millj­arða af rekstr­ar­tekj­um. Tæp­lega þriðja hver króna sem kom í hendur félags­ins árið 2017 var því hreinn hagn­að­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent