Bandarískt fyrirtæki kaupir ráðandi hlut í Kvikna Medical

Fyrirtækið Alliance Family of Companies hefur keypt ráðandi hlut í íslenska tæknifyrirtækinu Kvikna Medical ehf..

Kvikna
Kvikna
Auglýsing

Banda­ríska fyr­ir­tækið Alli­ance Family of Companies hefur keypt ráð­andi hlut í íslenska tækni­fyr­ir­tæk­inu Kvikna Med­ical ehf.. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­in­u. 

Kvikna Med­ical ehf, sem var stofnað árið 2008, hann­ar, fram­leiðir og selur búnað fyrir upp­töku og úrvinnslu á heila­línu­riti. Í til­kynn­ing­unni segir að fyr­ir­tækið hafi verið braut­ryðj­andi í tölvu­ský­þjón­ustu á heil­brigð­is­sviði og hafi rekið skýja­þjón­ustu fyrir heila­línu­rit í Banda­ríkj­unum síðan 2013. Á síð­asta ári hafi verið unnin á aðra milljón klukku­stunda af heila­línu­riti á skýi Kvikna.

Heila­línu­rit er mest notað til grein­ingar á floga­veiki en á und­an­förnum árum hefur notkun þess auk­ist á gjör­gæslu­deildum og vöku­deild­um. Kvikna stefnir að því að taka for­ystu á þessu sviði.

Auglýsing

Garðar Þor­varð­ar­son, fram­kvæmda­stjóri Kvikna Med­ical, segir fjár­fest­ing­una verða til þess að styrkja mjög starf­semi Kvikna Med­ical hér á landi auk þess sem auk­inn kraftur verði settur í mark­aðs­setn­ingu á erlendum mörk­uð­um. „Kaup Alli­ance á ráð­andi hlut í Kvikna Med­ical er mikil við­ur­kenn­ing fyrir það starf sem hér hefur verið unnið og stað­festir að við erum á réttri leið,“ segir hann. 

Garðar Þorvarðsson og Justin Magnuson Mynd: Aðsend

Alli­ance Family of Companies býður upp á þjón­ustu við grein­ingu á tauga­sjúk­dómum og er stærsta fyr­ir­tæki Banda­ríkj­anna á því sviði. Alli­ance er jafn­framt á lista Inc 500 yfir þau fyr­ir­tæki sem hrað­ast vaxa í Banda­ríkj­un­um, segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Justin Magnu­son, fram­kvæmda­stjóri Alli­ance Family of Companies, segir að fyr­ir­tækið hafi verið í við­skiptum við Kvikna Med­ical um margra ára skeið. „Lausnir Kvikna eru afar mik­il­vægar í okkar rekstri og þess vegna er þessi fjár­fest­ing rök­rétt næsta skref. Við höfum miklar vænt­ingar til þess að aukið sam­starf fyr­ir­tækj­anna leiði af sér ný tæki­færi fyrir bæði fyr­ir­tæk­in, og komi sjúk­lingum okkar til góða,“ segir hann.

Starfs­menn Kvikna á Íslandi eru um 20 og starfa flestir við vöru­þró­un. Sam­kvæmt til­kynn­ing­unni mun starfs­mönnum hér á landi fjölga nokkuð í kjöl­farið á þessum við­skipt­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent