Fjölmargir áhyggjufullir verðandi foreldrar hafa haft samband við Landspítala til að fá upplýsingar um stöðu mála á fæðingardeild og kvíðir framkvæmdastjóri kvenna- og barnasviðs því þegar deildin fyllist af verðandi mæðrum. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Linda Kristmundsdóttir, framkvæmdastjóri kvenna- og barnasviðs Landspítala, segir í samtali við Fréttablaðið að mönnunin nú sé 60 prósent miðað við lágmarksmönnun. „Það vantar ljósmæður á allar vaktir. Þetta er mjög erfitt.“ Auk þeirra tólf ljósmæðra sem hættu um mánaðamótin hafa átján til viðbótar sagt upp. Linda segir að tæplega 150 ljósmæður starfi á sviðinu í tæplega 100 stöðugildum. Hér sé því um að ræða verulega stórt hlutfall vinnuaflsins.
„Við reynum að taka því sem að höndum ber. Þetta er í rauninni krísustjórnun,“ segir hún um þá stöðu sem upp er komin vegna uppsagna tólf ljósmæðra sem tóku gildi síðastliðinn sunnudag.
Sérstök aðgerðaáætlun hefur verið sett upp á spítalanum og segir Linda að þegar hafi reynt á hana. Staðan hafi verið þokkaleg á sunnudag og mánudag en ástandið sé metið frá vakt til vaktar.
Einhverjar konur hafi verið útskrifaðar fyrr í heimaþjónustu og aðrar sendar annað. Linda segir samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir hafa gengið ágætlega. Þannig hafi valkeisaraskurðum verið beint annað.
„Það er heilmikið af áhyggjufullum verðandi foreldrum sem hafa samband. Okkur finnst það mjög erfitt en við reynum að útskýra stöðuna og aðgerðaáætlunina fyrir fólki. Fyrstu tveir dagarnir hafa verið þokkalega rólegir en við óttumst það þegar við fáum holskeflu, hvað gerum við þá? Það mun fyrst verulega reyna á þegar deildin fyllist. Það er tilviljun að það hafi verið rólegt fram að þessu,“ segir Linda við Fréttablaðið.
Velferðarnefnd fundar í dag
Í fréttinni kemur enn fremur fram að Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata og formaður velferðarnefndar Alþingis, vilji að heilbrigðisráðherra og fulltrúar Landspítala komi á fund nefndarinnar til að ræða stöðuna. „Þetta er mjög alvarleg staða. Okkur finnst mjög mikilvægt að fá upplýsingar frá þessum aðilum til að gera okkur betur grein fyrir stöðunni. Ábyrgðin á að finna lausn á þessu máli er mest hjá fjármálaráðherra og forsætisráðherra. Þetta eru ekki launahækkanir sem ljósmæður eru að biðja um heldur launaleiðrétting.“
Boðað er til fundar í velferðarnefnd klukkan 14.30 í dag og hefur ríkissáttasemjari boðað til næsta samningafundar á fimmtudag.