Íslenskt smáforrit í fjölskyldurými Google

Google tilkynnti nýverið að smáforritið Mussila, sem framleitt er af íslenska fyrirtæki, hafi verið valið til þess að vera kynnt í sérstöku fjölskyldurými sem Google var að opna.

Google - Logo
Auglýsing

Banda­ríska stór­fyr­ir­tækið Google til­kynnti nýverið að smá­forritið Mussila, sem fram­leitt er af íslenska fyr­ir­tæk­inu Rosam­osa, hafi verið valið til þess að vera kynnt í sér­stöku fjöl­skyldu­rými sem Google var að opna.

Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í morg­un. 

Fjöl­skyldu­rým­ið, sem á ensku kallast Fa­mily link, er öruggt svæði fyrir börn til þess að vafra á net­inu. For­eldrar geta fylgst með vefnotkun barna sinna á svæð­inu og sér­stök áhersla er lögð á að efnið sem er í boði innan rým­is­ins sé bæði fjöl­skyldu­vænt og fræð­andi.

Auglýsing

Í frétt­inni segir að Mussila-­leik­ur­inn, sem kennir börnum grunn­at­riði í tón­list í gegnum skap­andi leik og áskor­an­ir, verði efstur á síðu Goog­le-­fjöl­skyldu­rým­is­ins og mæli Google sér­stak­lega með leiknum fyrir for­eldra til að kynna börnum sín­um. Fjöl­skyldu­rýmið sé komið til 33 landa en Ísland sé ekki enn þar á með­al.

Mar­grét Sig­urð­ar­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri og annar stofn­enda Mussila, segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að ein­ungis hafi verið valin inn smá­forrit sem ætluð eru ákveðnum ald­urs­hópi. „Google Play-­store“ sé til­tölu­lega órit­skoð­aður vett­vang­ur, en núna sé komið svæði þar sem for­eldrar geta opnað reikn­ing fyrir börnin sín og vitað að þau geta treyst þeim for­ritum sem er þarna að finna. 

Hún segir jafn­framt að aukin mark­aðs­setn­ing sé á næsta leiti. „Google er að fara að mark­aðs­setja rýmið meira, þeir hafa ekki haft mjög hátt um þetta á meðan þeir eru að fín­pússa og láta þetta virka full­kom­lega. Núna ætla þeir að fara að leggja meiri áherslu á þetta rými og ætla að taka nokkur vel valin öpp og aug­lýsa þau sér­stak­lega. Við erum eitt af þeim öpp­um.“

Mussila-smá­forritið verður haldið fram­ar­lega innan fjöl­skyldu­rým­is­ins í nokkrar vikur í röð og svo með reglu­legum hætti eftir það, segir Mar­grét. Í við­tal­inu kemur fram að þau séu búin að fara í gegnum nokkrar síur, fyrst þar sem leit­ar­vél þeirra finnur for­ritið vegna góðrar ein­kunnar sem það er með í versl­un­inni. Svo sé Google með sitt kenn­arateymi sem valdi úr þeim smá­forritum sem komust í gegnum fyrstu síuna.

„Þetta er mjög góð aug­lýs­ing fyrir okkur en við eigum eftir að sjá hvað þetta skilar miklu. Fjöl­skyldu­rýmið er ekki orðið mjög stórt enn­þá, en við sjáum til hvað verð­ur. Ég hef mikla trú á því að þetta eigi eftir að vaxa mik­ið. Þetta er fyrst og fremst við­ur­kenn­ing, að vera valin þarna inn. Þetta er ótrú­lega stórt,“ segir Mar­grét við Morg­un­blað­ið. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent