Bókaútgefendur gagnrýna styrkveitingu Alþingis

Átta bókaútgefendur eru ósáttir við fyrirhugaða 25-30 milljóna króna styrkveitingu Alþingis til Hins íslenska bókmenntafélags í tilefni útgáfu tveggja ritverka.

Steingrímur J. Sigfússon er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögunnar
Steingrímur J. Sigfússon er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögunnar
Auglýsing

Átta bóka­út­gef­endur gagn­rýna fyr­ir­hugað sam­starf Alþingis við Hið íslenska bók­mennta­fé­lag um útgáfu tveggja rit­verka í til­efni ald­ar­af­mælis full­veldis Íslands. Útgef­end­urnir segja geð­þótta ráða för þings­ins og vinnu­brögðin eiga að heyra for­tíð­inni til í sam­eig­in­legri grein í Morg­un­blað­inu í morg­un.

Sam­starfið var kynnt með þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem lögð var fram síð­asta föstu­dag, en kosið verður um hana á Þing­völlum á morg­un. Í til­lög­unni, sem leidd er af Stein­grími J. Sig­fús­syni, ályktar Alþingi að ganga til sam­starfs við Hið íslenska bók­mennta­fé­lag um útgáfu tveggja rit­verka, ann­ars vegar verks um Þing­velli í íslenskri mynd­list og hins vegar nýs yfir­lits­verks um sögu íslenskra bók­mennta frá land­námi til 21. ald­ar. 

Áætlað er að kostn­aður Alþingis við sam­starfið muni nema sam­tals um 25-30 millj­ónir króna, sem yrði deild niður í tíu millj­óna króna útgjöld á hvert ár í þrjú ár. Í rök­stuðn­ingi fyrir sam­starf­inu segir í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu það vera  „mjög vel við hæfi“ vegna 100 ára full­veld­is­af­mælis á Íslandi í ár. 

Auglýsing

„Óljós teng­ing“ við full­veld­is­af­mæli

Í grein bóka­út­gef­enda í Morg­un­blað­inu í dag voru vinnu­brögð Alþingis harð­lega gagn­rýnd, en höf­und­arnir telja að styrkirnir hefðu átt að fara í gegnum Mið­stöð íslenskra bók­mennta, sem ann­ast opin­berar styrk­veit­ingar til bóka­út­gáfu. Sam­kvæmt þeim er 30 millj­óna króna styrk­veit­ing jafnhá upp­hæð og Mið­stöðin fékk á síð­asta ári, en þar dreifð­ist hún yfir á sjötta tug verka.

Bóka­út­gef­end­urnir segja enn fremur teng­ing­una við full­veld­is­af­mælið óljósa og styrk­veit­ing­una minna á Alþingi fyrri tíma þar sem styrkir til bóka­út­gáfu voru að stórum hluta háðir geð­þótta þing­manna og ráð­herra. „Vinnu­brögðin við þessa styrk­veit­ingu eiga hins vegar að heyra for­tíð­inni tryggi­lega til og okkur finnst með ólík­indum að þing­heimur skuli hafa sam­þykkt þetta með einum rómi, enda eigi menn á þeim bæ að vita bet­ur,“ segir í grein­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent